fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
Fréttir

Hraðakstur vandamál

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 3. ágúst 2019 08:40

Lögreglan á Suðurlandi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslunamannahelgina er búin að vera róleg hjá lögreglunni á Suðurlandi það sem af er þrátt fyrir að mjög margir bæði innlendir og erlendir ferðmenn séu núna í umdæminu. Eru tjaldsvæði víða þétt skipuð.

Skemmtanahald fór vel fram og voru fá útköll og verkefni sökum vímuástands eða óspekta síðastliðna nótt. Einn gisti fangageymslu lögreglu á Selfossi.

Hraðakstur hefur skapað flest verkefni lögreglunnar á Suðurlandi það sem af er helginni. Tuttugu ökumenn  voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var mældur á 176 km/klst. hraða. Var hann sviptur ökuréttindum á staðnum og þurfti að láta af hendi nokkurra daga gamalt ökuskírteini sitt.

Lögreglan segir enn fremur um þetta í tilkynningu sinni:

„Lögregla mun halda uppi öflugu eftirliti næstu daga. Ökumenn mega búast við að lögregla setji upp eftirlitsstöðvar á völdum staðsetningum þar sem kannað verður með ástand ökutækja sem og ástand og réttindi ökumanna. Lögregla verður einnig með óeinkennisklædda lögreglumenn á ferð um umdæmið.

Lögregla áréttar að akstur, áfengi og önnur vímuefni eiga ekki samleið og beinir þeim tilmælum til ökumanna að setjast ekki undir stýri nema allsgáðir og úthvíldir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilhjálmur fengið nóg og vill verðlækkanir – „Þegar krónan veikist hækka verðin strax“

Vilhjálmur fengið nóg og vill verðlækkanir – „Þegar krónan veikist hækka verðin strax“
Fréttir
Í gær

Flosi ómyrkur í máli um árin í ferðaþjónustunni – „Mér þótti yfirmenn mínir oft hegða sér undarlega“

Flosi ómyrkur í máli um árin í ferðaþjónustunni – „Mér þótti yfirmenn mínir oft hegða sér undarlega“
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem reyndi að ræna Önnu prinsessu segist saklaus – „Ég var hræddari en hún“

Maðurinn sem reyndi að ræna Önnu prinsessu segist saklaus – „Ég var hræddari en hún“
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið – Reynt að láta 19 ára pilt taka á sig alla sökina

Gufunesmálið – Reynt að láta 19 ára pilt taka á sig alla sökina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorvaldur segir líkur á öðru gosi: „Það væri þá í kringum jólin eða eitthvað svoleiðis“

Þorvaldur segir líkur á öðru gosi: „Það væri þá í kringum jólin eða eitthvað svoleiðis“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drengirnir með englaandlitin frömdu hræðilegt ódæði – Móðirin hylmdi yfir með þeim

Drengirnir með englaandlitin frömdu hræðilegt ódæði – Móðirin hylmdi yfir með þeim