fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Kvaddur með sorg í hjarta

Guðmundur Ragnar Einarsson
Sunnudaginn 4. ágúst 2019 08:00

Minning um mann Sigurður brann fyrir að hjálpa ungum fíklum og foreldurm þeirra. Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Magnason læknir lést sunnudaginn 21. júlí síðastliðinn, fimmtíu ára að aldri. Sigurður átti ættir að rekja norður í land. Eftir útskrift úr Menntaskólanum á Akureyri stundaði hann nám í læknisfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 2004. Stuttu eftir útskrift hélt hann til Noregs í sérnám í barnalækningum og starfaði sem læknir við Barneklinikken í Bergen fram á mitt ár 2012, þegar hann sneri aftur heim til Íslands. Eftir heimkomuna starfaði hann sem læknir við heilsugæsluna í Hamraborg í Kópavogi og við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Hann vann síðan á Heilsugæslustöðinni í Hlíðunum í Reykjavík þar til hann lést.

Samráðsvettvangur foreldra

Sigurður barðist ötullega fyrir aukinni vitundarvakningu um vanda ungra fíkla og var einn af stofnendum samstarfshópsins Allsgáð æska – vímuefnaforvarnir og valdefling foreldra. Hans hugðarefni var að búa til samráðsvettvang til að valdefla foreldra barna með vímuefnavanda. Í þessum samstarfshópi voru fulltrúar frá Vímulausri æsku, IOGT á Íslandi, Foreldrahúsi og Olnbogabörnum. Markmiðið var að búa til vettvang þar sem foreldrar gátu miðlað reynslu sinni, í þeirri von að þeirra saga gæti hjálpað öðrum.

Sigurður skipulagði nokkur málþing þessu tengdu, sem DV sýndi beint frá. Það fyrsta var haldið 1. september í fyrra í Veröld, húsi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Tilgangur málþinganna var að miðla upplýsingum og draga fram í dagsljósið þá sem hefðu eitthvað fram að færa sem væri valdeflandi fyrir foreldra. Málþingin voru opin öllum, þau voru vel sótt og hjálpuðu mörgum.

Vakti athygli hvert sem hann fór

DV átti í miklu og góðu samstarfi við Sigurð í tengslum við þetta verkefni og sá undirritaður um að hjálpa honum við undirbúninginn sem stóð yfir í mörg ár. Sigurður brann fyrir þetta verkefni. Hann lagði sig allan í að hjálpa öðrum og vakti athygli hvert sem hann fór, svo mikill var krafturinn og ástríðan. Sigurður var einnig gagnrýninn á íslenska velferðarkerfið og það úrræðaleysi sem blasir við foreldrum barna með fíknivanda.

Sigurður skilur eftir sig tvær dætur. Útför Sigurðar verður gerð frá Hjallakirkju í Kópavogi þann 8. ágúst næstkomandi klukkan 13. DV vottar dætrum, fjölskyldu og vinum Sigurðar innilegar samúðarkveðjur. Við minnumst Sigurðar sem einstaks manns og samstarfsfélaga.

Hlustaði af athygli Frú Vigdís Finnbogadóttir á einu af málþinginu sem Sigurður stóð fyrir. Ljósmynd: DV/Hanna

Ómetanlegur hlekkur

Bára Tómasdóttir, Óskar Vídalín Kristjánsson, Andrea Ýr Arnarsdóttir og Aníta Rún Óskarsdóttir eru forsvarsmenn Minningarsjóðs Einars Darra og forsprakkar átaksins Ég á bara eitt líf. Þau minnast Sigurðar með hlýju og kveðja hann með sorg í hjarta.

Minnast Sigurðar með hlýju Hópurinn á bak við minningarsjóð Einars Darra og Ég á bara eitt líf á málþingi í Veröld. Ljósmynd: DV/Hanna

„Sigurður Magnason, þessi dásamlegi maður, var einn af þeim fyrstu sem studdu og hvöttu okkur í Minningarsjóði Einars Darra áfram í þjóðarátakinu Ég á bara eitt líf. Hann var okkur ómetanlegur hlekkur og aðstoð í öllu okkar starfi, við gátum alltaf treyst á hann ef okkur vantaði trygga hjálparhönd, faglega ráðgjöf eða vináttusamtal og verðum við honum ávallt virkilega þakklát. Hans verður sárt saknað og kveðjum við hann með virkilega sorg í hjarta,“ segja þau og votta fjölskyldu Sigurðar samúð sína.

„Minning um eins góðhjartaðan, greindan og yndislegan mann mun lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Hugur okkar er hjá dætrum hans og fjölskyldu, innilegar samúðarkveðjur, ást og kærleikur til þeirra. Þúsund þakkir fyrir allt, elsku Sigurður, og sérstakar þakkir fyrir allt þitt frábæra starf í þágu lýðheilsu Íslendinga. Hvíldu í friði elsku vinur.“

Fagur og hjartahlýr

Borgar Magnason, bróðir Sigurðar, gaf DV góðfúslega leyfi til að birta minningarorð sem hann deildi á Facebook um bróður sinn.

Syrgir bróður sinn Borgar Magnason.

„Undanfarnar vikur höfum við bræðurnir verið í sumarfríi og mikið saman með dætur okkar. Mikið óskaplega sem ég er þakklátur fyrir það nú. Betri stóra bróður hefði ég ekki getað hugsað mér. Ég er svo óendanlega stoltur af þér elsku bróðir minn og þakklátur fyrir þig. Svo fagur og hjartahlýr. Guð gefi þér nú ró bróðir minn en hinum líkn sem lifa.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Staðfesta komu Pogba
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu