Manuela Ósk Harðardóttir hefur sent frá sér yfirlýsingu. Það gerir hún eftir að Vísir greindi frá því í dag að dómstóll í Los Angeles hefði komist að þeirri niðurstöðu í vikunni að fyrirsætan og Snapchat-stjarnan Manuela Ósk Harðardóttir hefði brotið Haagsamninginn með því að flytja með börn sín tvö til Bandaríkjanna síðastliðið haust. Þar sagði einnig að Manuela hefði farið til Bandaríkjanna í lok september í fyrra með börn sín og hafi ekki fengið til þess leyfi frá barnsfeðrum sínum. Í frétt Vísis sagði að niðurstaða dómstólsins væri sú að um ólögmætt brottnám væri að ræða og þar með brot á Haagsamningnum. Þá hefði feðrunum verið afhent vegabréf barnanna og þeir farið til Íslands með börnin og Manuela farið með sama flugi og þau komið öll til landsins í gær.
Í yfirlýsingunni sem undirrituð er af lögmanni hennar, Ómari R. Valdimarssyni, segir að árið 2016 hafi Manuelu boðist námsvist og skólastyrkur til þess að leggja stund á 1 árs meistaranám við Fashion Institute of Design & Merchandising í Los Angeles, sem hún svo þáði. Heldur Manuela fram að barnsfeður hennar hafi verið upplýstir um það og ekki gert athugasemdir. Þegar hafi farið að styttast í námið hafi þeir lagst gegn því að hún myndi fara í skólann í Los Angeles. Segir Manuela að þetta hafi komið henni á óvart og þá sérstaklega viðbrögð Grétars Rafns Steinssonar. Í yfirlýsingunni segir:
„þar sem hann er ekki búsettur á Íslandi og hefur ekki haft mikil afskipti af uppeldinu eða sinnt reglulegri umgengni frá því að samvistum hans og Manuelu lauk þegar dóttir þeirra var 10 vikna gömul.“
Manuela ákvað samt sem áður að fara í nám til Bandaríkjanna þrátt fyrir mótbárur barnsfeðra sinna. Þá segir að ekkert mál sé í gangi hjá opinberum aðilum, hvorki dómstólum né stjórnvöldum.
12. maí 2017: Yfirlýsing frá Manuelu Ósk Harðardóttur Í ljósi fréttaflutnings af forræðismáli Manuelu Óskar Harðardóttur, vill undirritaður lögmaður taka eftirfarandi fram:
Á sama tíma og það er leitt að deilur um umgengnisrétt einstaklinga rati í fjölmiðla, er mikilvægt að staðreyndir málsins liggi ljósar fyrir fyrst málið hefur þangað ratað. Börn Manuelu hafa búið hjá henni frá fæðingu og verið þar með sitt lögheimili. Feður barnanna, hafa haft umgengnisrétt við börnin. Árið 2016 bauðst Manuelu námsvist og skólastyrkur til þess að leggja stund á 1 árs meistaranám við Fashion Institute of Design & Merchandising í Los Angeles, sem hún svo þáði.
Barnsfeður hennar voru upplýstir um þessar fyrirætlanir og gerðu við þær engar athugasemdir, til að byrja með. Þegar það fór að styttast í að námið hæfist og búið var að gera ráðstafnir þess efnis komu fram athugasemdir frá barnsfeðrum Manuelu og lögðust þeir gegn því að hún myndi sækja sér nám utan landsteinanna. Þessar athugasemdir komu Manuelu nokkuð á óvart, sér í lagi hvað varðar Grétar Rafn Steinsson, þar sem hann er ekki búsettur á Íslandi og hefur ekki haft mikil afskipti af uppeldinu eða sinnt reglulegri umgengni frá því að samvistum hans og Manuelu lauk þegar dóttir þeirra var 10 vikna gömul.
Misskilningur á réttarreglum olli því að Manuela flutti utan með börn sín, þrátt fyrir andstöðu barnsfeðra hennar. Í fyrirtöku hjá dómstól í Los Angeles þann 9. maí sl. samþykkti Manuela að mistök hefðu verið gerð og lýsti sig reiðubúna til að halda heim til Íslands með börnin samstundis til að greiða mætti úr málinu. Þetta var gert eftir að börnin voru sótt í skólann með lögregluvaldi – án þess að nokkurn tíma hafi verið haft samband við umbj. minn.
Ákvað Manuela að ekki yrðu höfð uppi mótmæli vegna þessa fyrir hinum bandaríska dómstól til að tryggja að börnin kæmust sem fyrst aftur í hennar umsjá á Íslandi, en rétt er að taka það fram að eftir að börnin komu til Íslands voru þau aftur flutt í umsjá móður sinnar.
Ekkert mál er í gangi hjá opinberum aðilum hvað þetta mál varðar, hvorki stjórnvöldum né dómstólum. Tekið skal sérstaklega fram, að á meðan náminu hefur staðið, hafa börnin verið í stöðugum samskiptum við feður sína. Ekkert verið gert af hálfu umbj. míns til þess að draga úr eða tálma með öðrum hætti að feðurnir geti átt í góðum samskiptum við börnin sín – þvert á móti er það einlæg ósk hennar að samskiptin séu umtalsvert meiri en þau hafa verið til þessa. Heppilegast væri ef mál af þessu tagi væru ekki til umfjöllunar, að mati umbj. míns. Manuela biður hins vegar fjölmiðla góðfúslega um nærgætni, kjósi þeir allt að einu að fjalla um þetta mál.
Virðingarfyllst, Ómar R. Valdimarsson.