fbpx
Laugardagur 16.ágúst 2025
Fréttir

Undarlegt athæfi á Suðurlandi: Fylgdi sjúkrabíl eins og skugginn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 17. júlí 2019 15:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Suðurlandi hafði í gær afskipti af ökumanni fólksbíls sem hafði tekið þá ákvörðun að elta sjúkrabíl sem var í forgangsakstri eftir Suðurlandsvegi. Sjúkrabílnum var ekið með bláum forgangsljósum og var alveg sama á hvaða hraða sjúkrabílnum var ekið, alltaf fylgdi umræddur ökumaður á eftir eins og skugginn.
Ökumaðurinn var kærður fyrir hraðakstur og fékk hann alvarlegt tiltal vegna athæfisins. Lögregla lítur málið mjög alvarlegum augum en fyrir utan hraðaksturinn þarf ekki að fjölyrða um þá hættu er umræddur ökumaður skapaði með athæfi sínu.
Enn fremur segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi:

„Þá stöðvaði Lögreglan á Suðurlandi erlendan ferðamann á 145 km hraða á klst á Suðurlandsvegi milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs síðastliðna nótt. Gaf ökumaður þá skýringu að hann ætti bókað flug frá Íslandi í dag en hann ætlaði að aka hringinn og taka nokkrar ljósmyndir. Þar sem ökumaðurinn var á á leið til austurs var honum bent á að skynsamlegra væri að snúa við og aka til vesturs ef hann ætlaði sér að ná umræddu flugi.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt