fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Fréttir

Allt á floti í Bretlandi – „Hvað varð eiginlega um sumarið?“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 11. júní 2019 10:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Milljónir Breta munu upplifa enn eitt ömurlegt ferðalagið í vinnu í dag eftir að skyndiflóð víða gerðu það að verkum að vegir fóru í kaf – von er á enn meiri hellidembu í dag.“

Um það bil svona hefst frétt á vef Mail Online um veðrið í Bretlandi sem hefur ekki verið beint upp á marga fiska að undanförnu. Úrhellisrigning hefur gert íbúum víða lífið leitt, til dæmis í Kent og í Miðlöndunum. Þar hefur lögregla varla haft undan við að svara íbúum sem hafa tilkynnt um vegi sem eru á floti eða hálfpartinn í kafi.

Von er á talsverðri rigningu í norðausturhluta Englands í dag og í Miðlöndunum. Hafa íbúar á þessum svæðum tjáð sig um veðrið á Twitter, einhverjir hafa talað um að smíða bát til að komast á milli staða á meðan aðrir spyrja hvað hafi eiginlega orðið um sumarið.

Á meðan allt er á floti í Bretlandi er sumar og sól á Íslandi eins og landsmenn hafa tekið eftir. Á suðvesturhorninu hefur varla dregið fyrir sól í um hálfan mánuð og von er á góðu veðri áfram.

„Víðáttumikið hæðasvæði ræður ríkjum yfir Íslandi og er því frekar hægur vindur og víða bjart í veðri í dag. Sá galli er á gjöf Njarðar að með þessu hæðasvæði fylgja þokubakkar með ströndinni, sérstaklega N- og V-lands, en sólin mun líklega ná að bræða þá af sér yfir daginn. Á morgun snýst í norðvestlæga átt og þykknar upp um landið N-vert með lítilsháttar rigningu NA-til annað kvöld, en þar styttir þó upp á fimmtudaginn. Á morgun stefnir í hlýnandi veður um landið S-vert og líkur á að hæstu hitatölur fari yfir 20 stig,“ segir í hugleiðinum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Bönkuðu upp á hjá manninum sem braut gegn dóttur hans – Það endaði með dómsmáli

Bönkuðu upp á hjá manninum sem braut gegn dóttur hans – Það endaði með dómsmáli
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum