Robert Lewandowski, leikmaður Bayern Munchen, vill sjá félagið reyna við Leroy Sane í sumar.
Sane er leikmaður Manchester City en hann átti ekki alltaf fast sæti í liðinu á tímabilinu.
Lewandowski vill sjá Bayern kaupa Sane í sumar en hann gæti verið til sölu fyrir rétt verð.
,,Þetta er stórkostlegur leikmaður sem er með mikla hæfileika og er efnilegur,“ sagði Lewandowski.
,,Ég hef nú þegar séð hversu góður hann er. Þetta er leikmaður sem getur tekið okkur á næsta stig, hann bætir liðið.“