Juan Mata, leikmaður Manchester United var kallaður á fund hjá Ed Woodward, stjórnarformanni félagsins. Beint eftir tapið gegn Cardiff í gær.
United fékk skell í síðasta leik gegn Cardiff en Juan Mata verður samningslaus í júlí.
Woodward reynir að framlengja við Mata en Ole Gunnar Solskjær vill halda honum í herbúðum félagsins.
Mata fer fram á tveggja ára samning en deilur hafa verið í kringum það, United vill bjóða honum eitt ár með möguleika á auka ári.
Mata yrði ekki lykilmaður hjá Solskjær en myndi vera á meðal fyrstu manna inn af bekknum.