Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór að heimili í austurborginni um klukkan fjögur í nótt. En þar hafði íbúi komið heim af skemmtanalífinu og sofnað ölvunarsvefni með pizzu í ofninum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Þá var óskað var eftir aðstoð lögreglu að verslun í Kópavogi um klukka átta í gærkvöldi. Þar hafði maður reynt að hafa með sér kjötmeti án þess að inna af hendi greiðslu
Þá voru tveir menn voru handteknir í miðborginni laust eftir klukkan fjögur í nótt, en þeir höfðu borið fyrir sig hnífa í átökum. Fram kemur að tvemenningarnir voru vistaðir í fangageymslum í þágu rannsóknar málsins.
Um hálf fimmleitið barst síðan tilkynning um þrjá menn í tökum dyravarða í miðborginni, en þeir munu hafa tekið þátt í átökum. Lögregla fór að vettvangi og tók við úrlausn málsins.
Þá voru alls sex sex ökumenn stöðvaðir í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.