fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Fréttir

Aukinn systkinaafsláttur til foreldra

Ritstjórn DV
Föstudaginn 12. apríl 2019 09:59

Leikskóli - Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fyrir áramót var samþykkt að gerðar yrðu breytingar á systkinaafslætti gjalda fyrir leikskóla- og frístundaþjónustu með þeim hætti að barnafjölskyldur greiði aðeins námsgjald fyrir eitt barn, þvert á skólastig,“

Þetta segir Reykjavíkurborg í tilkynningu vegna systkinaafsláttar.

Áhrifin af þessu eru þau að systkinaafsláttur vegna eldri systkina hækkar úr 75% í 100% sem mun bæta hag barnafjölskyldna með fleiri en eitt barn á leik- og grunnskólaaldri, þar með talið hjá dagforeldrum.

„Skóla- og frístundasvið hefur unnið að útfærslu þessarar ákvörðunar og leggur nú til að gerðar verði breytingar á reglum um leikskólaþjónustu, reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva,“ segir í tilkynningu borgarinnar,

Breytingar á reglunum þýða að framlög verða líka aukin vegna systkina til sjálfstætt rekinna leik- og grunnskóla með samning við skóla- og frístundasvið og þá er gert ráð fyrir að aukið framlag taki mið af gjaldskrá sviðsins auk þess sem greitt er 15 prósenta álag.

„Unnið er að gerð samnings við sjálfstætt rekna grunnskóla með þjónustusamning við skóla- og frístundasvið vegna reksturs frístundaheimila þeirra og er þar gert ráð fyrir að framlagið vegna frístundaheimila taki mið af auknu framlagi vegna systkina með þeim hætti að miðað verði við gjaldskrá skóla- og frístundasviðs vegna frístundaheimila borgarinnar,“ segir í tilkynningu frá borginni.

Þá er tekið fram að þessi breyting á systkinaafslætti hafi ekki áhrif á aðra afslætti samkvæmt reglum. Þannig geti foreldrar bæði fengið 100% systkinaafslátt og námsmannaafslátt. Lagt er til að fjárheimildir sviðsins verði hækkaðar um rúmlega 15 milljónir vegna breytinga á reglunum.

Hér má sjá töflu með dæmum um breytingar. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ragnar Þór lætur Guðrúnu heyra það – „Til marks um rökþrota og kjánalegt viðhorf“

Ragnar Þór lætur Guðrúnu heyra það – „Til marks um rökþrota og kjánalegt viðhorf“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Fá ekki að skoða tæki manns sem grunaður er um kynferðisbrot gegn dóttur sinni – Segir viðkvæm gögn um stjórnmálaflokk leynast þar

Fá ekki að skoða tæki manns sem grunaður er um kynferðisbrot gegn dóttur sinni – Segir viðkvæm gögn um stjórnmálaflokk leynast þar
Fréttir
Í gær

Stýrivextir haldast óbreyttir – Allir nefndarmenn studdu ákvörðunina

Stýrivextir haldast óbreyttir – Allir nefndarmenn studdu ákvörðunina
Fréttir
Í gær

Daði Már: „Þetta er hlut­ur sem ég tek mjög al­var­lega“

Daði Már: „Þetta er hlut­ur sem ég tek mjög al­var­lega“
Fréttir
Í gær

Jón Þór fluttur í opið fangelsi – Reyndi að myrða barnsmóður sína á Vopnafirði í fyrra

Jón Þór fluttur í opið fangelsi – Reyndi að myrða barnsmóður sína á Vopnafirði í fyrra
Fréttir
Í gær

Fréttir af háum launum framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar villandi

Fréttir af háum launum framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar villandi