fbpx
Þriðjudagur 02.desember 2025
Fréttir

Birgitta lifir undir fátæktarmörkum eftir að hafa hætt á þingi: „Kulnun er grafalvarleg og dregur úr manni allan mátt“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 3. apríl 2019 13:36

Birgitta Jónsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég var búin að fá nóg. Ég er klassískur listamaður og lagði allt í að standa mig sem þingmaður, ég vildi alvöru breytingar í þjóðfélaginu. Þegar ég hætti á þingi var ég komin með kulnun og hef verið að vinna mig út úr henni síðan. Kulnun er grafalvarleg og dregur úr manni allan mátt. En nú er sólin farin að hækka á lofti og ég finn að sköpunarkrafturinn er að koma aftur.“

Þetta segir Birgitta Jónsdóttir, einn stofnenda Pírata og fyrrverandi þingmaður, í viðtali á vefnum Lifðu núna. Hún segist lifa undir fátækramörkum þar sem mörg þau verkefni sem hún sinnir nú séu ólaunuð.

„Ég á svo erfitt með að segja nei. Oft eru þetta verkefni sem ekkert er borgað fyrir svo enn á ný er ég komin undir fátækramörk. En ég er nú svo sem vön því og kippi mér ekkert upp við það. Það eina sem ég vildi óska að ég hefði getað nýtt af þeirri reynslu sem ég fékk á Alþingi er tengslanetið sem ég aflaði mér. Ég hefði viljað geta nýtt það í þágu þjóðarinnar. Ég kynntist stjórnmálamönnum út um allan heim og margskonar samtökum. Mér finnst leiðinlegt að kasta þessu á glæ. En ég er nú þannig gerð að ef ég fæ ekki byr í seglin sný ég mér að einhverju öðru og það er nóg af skemmtilegum tækifærum í heiminum,“ segir Birgitta.

Hún segist þó hafa í nógu að snúast. Hún er til að mynda nýkomin af bókmenntaráðstefnu í Ástralíu. „Á ráðstefnunni var meðal annars fjallað um það ekki má tala um, leyndarmálin okkar.  Ég flutti fyrirlestur um sjálfsvíg og hvaða áhrif þau hafa á aðstandendur. Í fyrirlestrinum ræddi ég meðal annars um hvað er að gerast inní manni þegar einhver nákominn fellur fyrir eigin hendi. Eftirlifendur eru fullir af sektarkennd þegar þeirra nánustu fara á þennan hátt. Ég kynntist mörgu skemmtilegu fólki á ráðstefnunni rithöfundum og stjórnmálamönnum.  Fólki sem brennur í skinninu að breyta og bæta samfélögin sem það er sprottið uppúr,“ segir Birgitta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Guðlaugur Þór ómyrkur í máli: „Margir munu ekki hafa efni á að þiggja arf“

Guðlaugur Þór ómyrkur í máli: „Margir munu ekki hafa efni á að þiggja arf“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ágúst Mogensen skrifar á degi reykskynjarans: Mikilvægasti tékklistinn fyrir jólin

Ágúst Mogensen skrifar á degi reykskynjarans: Mikilvægasti tékklistinn fyrir jólin
Fréttir
Í gær

Ekki sammála um ábyrgð fjölmiðla á rætnum athugasemdum – „Mola þannig undan því sem eftir stendur af blaðamennsku á Íslandi“

Ekki sammála um ábyrgð fjölmiðla á rætnum athugasemdum – „Mola þannig undan því sem eftir stendur af blaðamennsku á Íslandi“
Fréttir
Í gær

Rak í rogastans eftir búðarferð – Trúði ekki hvað níu hlutir kostuðu

Rak í rogastans eftir búðarferð – Trúði ekki hvað níu hlutir kostuðu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ibrahim lofar munaðarleysingjaheimili Óla í Kenýa – „Þetta hjálpaði mér andlega og ég lærði svo mikið af þeim“

Ibrahim lofar munaðarleysingjaheimili Óla í Kenýa – „Þetta hjálpaði mér andlega og ég lærði svo mikið af þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nánasti samstarfsmaður Úkraínuforseta sagði af sér og ætlar í fremstu víglínu

Nánasti samstarfsmaður Úkraínuforseta sagði af sér og ætlar í fremstu víglínu