fbpx
Laugardagur 16.ágúst 2025
Fréttir

Fagnaðarfundur með grænlenskum vinum

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 15. mars 2019 09:44

Dines Mikaelsen er víðkunnur veiðimaður sagnameistari og listamaður frá Austur-Grænlandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrókurinn og Kalak bjóða til fagnaðarfundum með vinum frá Grænlandi, laugardaginn 16. mars kl. 14, í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11 við Reykjavíkurhöfn. Boðið verður upp á tónlist, veitingar og fræðslu um Grænland.

Hrafn Jökulsson og Steffen Lynge sem sigraði á meistaramóti Nuuk 2018 og hlaut Íslandsferð í verðlaun

Steffen Lynge er skákmeistari, tónlistarmaður og lögreglumaður, sem starfað hefur víða á Grænlandi. Hann tók þátt í fyrsta alþjóðlega móti Hróksins í Qaqortoq 2003, og hefur síðan verið burðarás í starfi Hróksins þar í landi. Steffen sigraði á meistaramóti Nuuk í fyrra, og hlaut Íslandsferð í verðlaun frá Air Iceland Connect. Hann er líka kunnur tónlistarmaður og lagahöfundur.

Dines Mikaelsen frá Tasiilaq er hér á ferð ásamt Færeyingnum Birgi Hansen, og tveimur unglingspiltum frá Tasiilaq, Samuel Mikaelsen og Mikael Bajare. Dines er allt í senn veiðimaður, listamaður og rithöfundur og hefur lagt sérstaka rækt við að varðaveita menningu Austur-Grænlendinga.

Sjana Rut Jóhannsdóttir, sönggyðja Hróksins, mun að auki gleða gesti með lögum sínum og song.

Við sama tækifæri verður haldin sýning á teikningum barnanna í Kulusuk, en þar voru Hróksliðar á ferð fyrstu vikuna í mars.

Allir áhugamenn um Grænland, að fornu og nýju, eru hjartanlega velkomnir á þennan fagnaðarfund.

 

Ein af verðlaunamyndum barnanna í Kulusuk. Listaverk eftir William Nathanielsen
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni

Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Segir að ekkert muni koma út úr leiðtogafundinum í Alaska

Segir að ekkert muni koma út úr leiðtogafundinum í Alaska