„Dóttir mín er með mikil líkamleg einkenni – þrálátar stíflur við ennis- og kinnholur, sár í munnvikum og mikið exem og sár í hársverði. Hún er alltaf með stíflað nef sem háir henni mjög í íþróttum,“ segir móðir 11 ára nemanda í Fossvogsskóla sem hefur orðið fyrir miklum heilsubresti sökum myglu í skólanum í Morgunblaðinu í morgun.
Fossvogsskóli er illa farinn vegna leka og á morgun, við lok skóladags, verður skólanum lokað og nemendum komið fyrir annars staðar. Í lok nóvember komu fulltrúar frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til að taka út skólann og gáfu honum einkunnina 4 af 5, með öðrum orðum var niðurstaðan að skólinn uppfyllti allar kröfur heilbrigðiseftirlitsins.
„Við höfum í gegnum tíðina bent á rakaskemmdir í skólanum,“ segir Árni Freyr Thorlacius Sigurlaugsson, aðstoðarskólastjóri, en heilbrigðiseftirlitið fann engar vísbendingar um lekavandamál.
Áðurnefndur nemandi hafði lengi fundið fyrir heilsufarsvandamálum og foreldrar ítrekað leitað með hana til læknis.
„Við létum auðvitað athuga þetta en það kom ekkert í ljós. Á þessum tíma tengdi ég heilsufarsvanda dóttur minnar ekki við skólann og hef í dag mjög mikið samviskubit vegna þessa,“ segir móðir hennar. Stúlkan fann fyrir einkennum á borð við höfuðverk, þreytu, húðsár og þrálátar stíflur og hefur þurft á lyfjagjöf að halda. Læknar spurðu foreldra hvor myglu væri að finna á heimilinu.
„Hún æfði áður þrjár íþróttir en hefur núna einungis orku til að æfa eina […] Við tókum þá ákvörðun að senda hana ekki í skólann – það borgar sig ekki að taka áhættuna.“
Móðirin er reið út í borgina.
„Við erum í þeirri stöðu að hundruð barna og starfsmanna eru í óheilbrigðu húsnæði. Það hlýtur einhver að bera ábyrgð á því.“
Að gera við bygginguna mun kosta tugi milljóna króna. Morgunblaðið hefur eftir Eyþóri Laxdal Arnalds, borgarfulltrúa, að ákvarðanir borgarinnar undanfarin ár, um að fresta viðhaldi bygginga, sé að leiða til meiri kostnaðar núna heldur en hefði strax verið ráðist í verkið.
„Það sem vekur athygli í þessu máli er hins vegar ekki bara skortur á viðhaldi heldur hvernig ástand skólans fór algjörlega framhjá borginni þar sem eftirlit hefur ekki virkað sem skyldi,“ segir Eyþór sem segir að kallað verði eftir útskýringum á því hvers vegna heilbrigðiseftirlitið tók ekki eftir heilsuspillandi ástandi skólans.
„Það er ekki sparnaður að fresta viðhaldi“