fbpx
Laugardagur 09.ágúst 2025
Fréttir

Ingimar braut bein við minnstu hreyfingu: Alltaf sendur heim því læknum fannst hann líta svo vel út – Svo kom greiningin

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. mars 2019 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég var búinn að vera margrifbeinsbrotinn í 3-4 mánuði áður en ég var greindur. Ég brotnaði við minnstu hreyfingu, eins og til dæmis að snúa mér í rúminu eða hósta. Ég var líka hryggbrotinn og mjög kvalinn út af því.“

Þetta segir Ingimar Jónsson, bóndi á Flugumýri í Skagafirði. Ingimar greindist með mergæxli haustið 2016 en þá var hann 48 ára gamall. Hann segir sögu sína í Karlaklefanum sem er fræðsluverkefni á vegum Krabbameinsfélags Íslands. Í Karlaklefanum er meðal rætt um heilsu, forvarnir, veikindi og fræðst um reynslu annarra.

Læknunum fannst hann líta vel út

Ingimar segir frá því að hann hafi fundið fyrir einkennum í rúmt ár, þar af miklum einkennum í 4-6 mánuði, án þess að læknar greindu meinið. Ingimar hafði ítrekað leitað læknis vegna einkennanna; þreytu, beinverkja og mikilla bakverkja.

„Ég fékk alls kyns sjúkdómsniðurstöður í þessum læknisheimsóknum og tveimur heimsóknum á bráðamóttöku; bólgið milta, rifbeinsbrot og fleira. Ég var allavega tvisvar sinnum búinn að segjast viss um að þetta væri krabbamein. En ég var alltaf sendur heim því læknunum fannst ég líta svo vel út. Ég fékk alltaf bara meiri verkjalyf,“ segir Ingimar.

Vissi að það væri eitthvað að

Hann segist hafa fundið fyrir ákveðnum létt þegar greiningin loksins kom en um var að ræða illkynja æxli í hryggjarlið. „Það var eiginlega bara gott að vita þetta loksins. Ég var búinn að vita lengi að það væri eitthvað að mér og að vissu leyti var þetta léttir.“

Ingimar var lagður inn á sjúkrahús í kjölfarið og mátti hann ekki hreyfa sig vegna brothættu í fimm vikur. Óttast var að hryggurinn myndi falla saman. „Daginn áður var ég að gera við sköfur úti í fjósi og bera þunga hluti. Þannig að þetta var mikil breyting frá einum degi til annars,“ segir Ingimar. Hann og kona hans, Margrét Óladóttir, eiga fimm börn og reka stórt og myndarlegt bú með 220 nautgripum, 70 hrossum, kindum, öndum og hundi. Eðli málsins samkvæmt hafa veikindin sett strik í reikninginn hjá fjölskyldunni og hafa hjónin þurft að kaupa verktaka til að sinna þeirri vinnu sem Ingimar gat áður sinnt.

„Ég náttúrulega vann mína vinnu, eða það sem ég gat, en þetta hélt bara áfram að versna. Þegar ég gafst alveg upp, var ég nánast orðinn alveg rúmliggjandi. Í dag get ég sinnt neyðarþjónustu en sinni ákaflega lítið vinnu sjálfur þótt ég reyni að stjórnast í því hver geri hvað.“

Líður ekki eins og öryrkja

Ingimar segir að það hafi komið honum á óvart að greinast með mergæxli. Hann hafi talið að hann væri með beinkrabbamein miðað við það sem hann hafði lesið. „En þótt ég sé kominn með örorkumat, þá líður mér ekki eins og öryrkja. Suma daga er ég bara fínn, en marga daga er ég mjög slappur,“ segir hann.

Ingimar gekkst undir stofnfrumumeðferð sem í fyrstu gaf góða raun. Hann náði sæmilegri orku í kjölfarið en í október síðastliðnum, tveimur árum eftir greiningu, var hann aftur farinn að brotna og má segja að hann sé nú kominn aftur á byrjunarreit. Hann er nú í framhaldsmeðferð og gerir ráð fyrir að fara í aðra stofnfrumumeðferð.

Hefði breytt miklu að greinast fyrr

„Maður er tæknilega bara drepinn og fylltur af krabbameinslyfjum áður en maður er endurræstur aftur með þessum stofnfrumum. Og svo er maður margar vikur eða mánuði að ná sér. Ég var algjörlega þreklaus fyrst. Gat rétt dregið mig upp og farið í buxur, en ekki mikið meira en það.“

Ingimar segist ráðleggja öllum sem finna fyrir einkennum að ganga hart fram í því að fá greiningu: „Það hefði alla vega breytt miklu fyrir mig ef ég hefði greinst kannski ári fyrr. Þá væri ég alveg ábyggilega í annarri stöðu í dag og miklu léttara að eiga við þetta.“

Þrátt fyrir stórt verkefni og möguleika á annarri stofnfrumumeðferð segist Ingimar ekki upplifa að hann sé sjúklingur þó hann sé veikur: „Og það sem kemur mér í gegnum þetta er nú bara jákvæðni og að vera í góðu skapi. Og svo á ég fullt af börnum og fallega fjölskyldu sem styðja mig í þessu öllu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir að FBI muni elta Demókratana frá Texas uppi

Segir að FBI muni elta Demókratana frá Texas uppi
Fréttir
Í gær

Guðni varar við inngripi „innrásarvíkinga“ af stærðargráðu sem engan órar fyrir

Guðni varar við inngripi „innrásarvíkinga“ af stærðargráðu sem engan órar fyrir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vallarstjórinn í Þorlákshöfn ómyrkur í máli eftir atvik í gær – „Engin tilraun var gerð til að kanna eða spyrja um ástand starfsmannsins“

Vallarstjórinn í Þorlákshöfn ómyrkur í máli eftir atvik í gær – „Engin tilraun var gerð til að kanna eða spyrja um ástand starfsmannsins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bandaríski blaðamaðurinn fannst heill á húfi

Bandaríski blaðamaðurinn fannst heill á húfi