fbpx
Laugardagur 09.ágúst 2025
Fréttir

Jón Baldvin líkir femínistum við mafíuna og nasista

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. mars 2019 09:29

Jón Baldvin Hannibalsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, gefur í skyn í aðsendri grein í Fréttablaðinu að það sé stutt í aftökur og bókabrennur ef öfgafemínistar séu ekki stoppaðir. Jón Baldvin hefur verið sakaður af tugum kvenna um kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi svo ljóst er að hann hefur ákveðna hagsmuni í málinu.

„Í fyrri grein sagði ég dæmisögu frá Kanada, um það hvernig öfgafemínistar eru að koma óorði á femínismann, þar rétt eins og hér. Saklaus maður var lýstur sekur án dóms og laga og líf hans lagt í rúst. Það var á þeirri stundu, sem Margaret Atwood, dáður höfundur meira en 40 bóka og heimsfrægur talsmaður femínista, kvaddi sér hljóðs í grein sinni „Am I a bad feminist?“ (13. jan. 2018) til að segja: „Hingað – en ekki lengra. Um mig hefur verið sagt, að ég hafi brotist til frama á ritvellinum með því að standa blóðug upp að öxlum yfir höfuðsvörðum feðraveldisins. Það var kannski svolítið ýkt. En – kæru systur – nú er mér nóg boðið. Sú var tíð, að við vantreystum réttar­kerfinu. En ætlum við að svara fyrir okkur með réttarmorði, utan réttarsala?“,“ skrifar Jón Baldvin.

Nornabrennur

Hann segir að ofbeldi sé oft í nafni mannréttinda. „Er þetta ekki klassískur Kiljan: „Vont er þeirra ranglæti, en verra er þeirra réttlæti“? Með þessu var Atwood að verja dýrmætustu arfleifð vestrænnar menningar – sjálft réttarríkið. Þegar á reynir, þurfum við öll á vernd þess að halda. Án þess hröpum við aftur niður í villimennsku. Sagan – líka nýleg saga – geymir ótal dæmi um þetta. Aftökur án dóms og laga. Fangelsanir fyrir engar sakir. Nornabrennur. Trúar­ofsóknir. Skoðanakúgun. Ritskoðun. Bókabrennur. Og það versta er þetta: Valdbeiting af þessu tagi er iðulega í upphafi réttlætt í nafni mannréttinda! Meira að segja Cosa Nostra – ítalska mafían – táknmynd hins gerspillta þjóðfélags, sem þrífst utan við lög og rétt, byrjaði upphaflega sem uppreisn gegn pólitískri harðstjórn,“ segir Jón Baldvin.

Hann nefnir svo fleiri dæmi. „Fleiri dæmi: Frelsisbarátta Kínverja gegn vestrænni nýlendukúgun var um skeið afvegaleidd í ofbeldi Rauðu varðliðanna. Rússneska byltingin gegn lénsveldi keisarans endaði í hinum Rauða terror Stalíns. Uppreisn Þjóðverja gegn óbærilegri fjárpynd sigurvegara fyrri heimsstyrjaldar endaði í geggjaðri þjóðrembu og Gyðingaofsóknum. Og nær okkur í tíma: Uppreisn Írana gegn pyntingameisturum Keisarans endaði í ógnarstjórn klerkaveldisins. Frelsisbarátta Nelsons Mandela í Suður-Afríku er þessi misserin að brotlenda í þjófabæli nýrrar elítu,“ segir Jón Baldvin.

Þjóðremba og ofbeldi

Hann segir það tómt mál að tala um lýðræði án réttarríkis. „Hvernig svara öfgafemínistar þessari málefnalegu gagnrýni? Hinir herskáustu yppa öxlum og segja: Allar byltingar krefjast sinna fórnarlamba – so be it! Allt í kringum okkur er verið að þrengja að lýðræðinu – m.a.s. Evrópuhugsjónin er að snúast upp í andhverfu sína í sumum löndum: Þjóðrembu og ofbeldi gegn minnihlutahópum og innflytjendum. Sjálft lýðræðið er í hættu. Það er tómt mál að tala um ­lýðræði án réttarríkisins. Þrátt fyrir að Atwood stigi fram og bæri sannleikanum vitni gegn ofstæki og öfgum, varð hún engu að síður skotspónn heiftúðugrar gagnrýni frá konum, sem þóttust tala í nafni kvenréttinda og kenndu sig við #metoo-hreyfinguna,“ segir Jón Baldvin.

Hann spyr hvort tilgangurinn helgi meðalinu. „Atwood var sökuð um svik. Hún var sögð gengin á hönd feðraveldinu. Hún var sökuð um að hreykja sér í yfirlæti elítunnar í Toronto og að hafa misst jarðsambandið við grasrótina. Umkomulausar konur sættu stöðugt ofbeldi karlkynsins, án þess að þora að leita réttar síns í réttarkerfinu. Réttarkerfið væri bara fyrir fínu konurnar í elítunni. Hinar væru áfram dæmdar til að þola ofbeldið í þögn. Reynslan kennir að það var eitthvað hæft í þessu. En eftir stendur spurningin: Helgar tilgangurinn meðalið?,“ spyr Jón Baldvin.

Hatur tekur völd

Hann segir ljóst að kerfið sé svifaseint. „Atwood tók mildilega á þessari gagnrýni. Hún tók undir það, að hið hefðbundna réttarkerfi hefði reynst vera andsnúið konum. Kúltúr löggæslunnar hefði löngum verið karllægur. Kerfið væri svifaseint. En þá stöndum við frammi fyrir vali, rétt einu sinni enn, eins og allar umbótahreyfingar fyrr og síðar hafa gert. Ætlum við að taka réttlætið í eigin hendur með ofbeldi? Eða ætlum við að knýja fram umbætur með lýðræðislegum aðferðum? Hvernig? Gerum við það með því að dæma menn án dóms og laga? Eða með því að sameinast um umbætur á löggjöf og reglusetningu?,“ spyr Jón Baldvin.

Hann segir að hugmyndarfræði geti orðið að trúarbrögðum. „Þetta snýst nefnilega allt saman um mannréttindi. Og konur eru menn. Mannréttindi verða ekki sundur slitin: Hvorki eftir kynferði, kynþætti, litarhætti, þjóðerni – né neinu öðru. Við erum að tala um mannréttindi Og án réttarríkisins eru engin mannréttindi. Látum ekki ofstæki, ofbeldi og hatur taka völdin. Stöndum saman, konur og karlar, í sameiginlegri baráttu fyrir mannréttindum, sem njóti verndar réttarríkisins.“

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir að FBI muni elta Demókratana frá Texas uppi

Segir að FBI muni elta Demókratana frá Texas uppi
Fréttir
Í gær

Guðni varar við inngripi „innrásarvíkinga“ af stærðargráðu sem engan órar fyrir

Guðni varar við inngripi „innrásarvíkinga“ af stærðargráðu sem engan órar fyrir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vallarstjórinn í Þorlákshöfn ómyrkur í máli eftir atvik í gær – „Engin tilraun var gerð til að kanna eða spyrja um ástand starfsmannsins“

Vallarstjórinn í Þorlákshöfn ómyrkur í máli eftir atvik í gær – „Engin tilraun var gerð til að kanna eða spyrja um ástand starfsmannsins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bandaríski blaðamaðurinn fannst heill á húfi

Bandaríski blaðamaðurinn fannst heill á húfi