fbpx
Fimmtudagur 31.júlí 2025
Fréttir

Inga skammar Sigurð Inga: Fátækt fólk hefur ekki efni á þessu – „Er furða þótt landsmönnum sé misboðið“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. febrúar 2019 09:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, til syndanna í grein sem hún skrifar í Morgunblaðið í dag.

Inga segist hafa verið stödd í þingflokksherbergi Flokks fólksins að hlusta á umræður í þingsal þegar hún skrifaði greinina.

„Rædd er fimm ára samgönguáætlun ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur á árunum 2019-2023. Nauðsyn þess að stórefla samgöngukerfið sem við erum öll sammála um að er gjörsamlega í molum. Uppsafnaður vandi í boði fyrri ríkisstjórna,“ segir Inga og bætir við að nöturlegt sé að fylgjast með því hvernig Sigurði Inga hefur snúist hugur á skömmum tíma hvað varðar vegtolla.

Engar áætlanir um veggjöld?

Hún vísar í viðtal RÚV við Sigurð Inga þann 5. desember 2017 þar sem Sigurður Ingi sagði að engar áætlanir væru uppi um veggjöld á helstu leiðum til og frá Reykjavík.

Nei, það er ekki stafkrókur um veggjöld í stjórnarsáttmálanum, segir Sigurður Ingi.

Fréttamaður: Þannig að það eru engar áætlanir um slíkar aðgerðir?

Nei, þær voru lagðar til hliðar sem og ýmsar aðrar álögur sem stóð til að leggja á bíla, þó svo við séum að taka upp græna skatta eins og kolefnisskatta.“

Inga bendir á í grein sinni að forveri hans í embætti, Jón Gunnarsson, hafi verið með áætlanir um að leggja á vegtolla á helstu samgönguleiðir við höfuðborgina. „En Sigurður Ingi sagði á þeim tíma að slíkt væri ekki inni í myndinni. Það tók fyrirrennara Sigurðar Inga ekki langan tíma að sannfæra hann um að ekkert væri í stöðunni annað en að auka skattbyrði á landsmenn. Fyrst skyldi taka tugmilljarða erlent lán til að flýta framkvæmdum við uppbyggingu samgöngukerfisins. Síðan senda afborganirnar á landsmenn alla eftir að framkvæmdum lyki. Já, nú er verið að undirbúa vegtolla á alla landsmenn í Alþingishúsinu við Austurvöll í boði Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra.

„Hættið að kúga þá sem ekkert eiga“

Inga Sæland bendir á að á þessu ári verði ríkissjóður af sjö milljörðum króna vegna lækkunar á bankaskattinum. „Á árinu 2019 mun lækkun veiðigjalda rýra tekjur ríkissjóðs um 4,3 milljarða króna. Lækkun sem sérstaklega mun nýtast stórútgerðinni. Er furða þótt landsmönnum sé misboðið. Bara þetta tvennt skerðir tekjur ríkissjóðs um 11,3 milljarða króna á árinu.“

Inga segir að þetta fé hafi mátt nota í þágu allra landsmanna til uppbyggingar á hinu „niðurnídda samgöngukerfi í stað þess að taka erlent lán og senda reikninginn síðan á almenning.“

Inga segir að Flokkur fólksins sé á móti vegasköttum.

„Hættið að kúga þá sem ekkert eiga. Sækið fjármagnið þangað sem það er að finna. Það er hin eina rétta forgangsröðun. Flokkur fólksins mótmælir harðlega þeirri grímulausu hagsmunagæslu sem ríkisstjórnin rekur til verndar þeim sem allt eiga á kostnað þeirra sem eiga ekkert. Bankarnir hafa efni á að greiða bankaskattinn, stórútgerðin hefur efni á að borga fullt verð fyrir aðgang að auðlindinni okkar. Fátækt fólk hefur ekki efni á að borga vegaskatta/tolla/gjöld eða nokkuð annað sem eykur við greiðslubyrðina sem er þeim óyfirstíganleg nú þegar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sláandi ásakanir í Rotherham-hneykslinu – Fimm fórnarlömb barnaníðshringja segja að lögreglumenn hafi einnig misnotað þær

Sláandi ásakanir í Rotherham-hneykslinu – Fimm fórnarlömb barnaníðshringja segja að lögreglumenn hafi einnig misnotað þær
Fréttir
Í gær

Hroðaleg meðferð Rússa á liðhlaupum

Hroðaleg meðferð Rússa á liðhlaupum