fbpx
Miðvikudagur 30.júlí 2025
Fréttir

Hart deilt um jólagjöf Costco til starfsmanna: „Eruð þið í alvöru að réttlæta þetta?“ – „Greinilegt að góðærið sé að ná toppi“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 26. desember 2018 10:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja á fólk skiptist í tvær fylkingar vegna jólagjafar Costco til starfsmanna sinna. Starfsmenn fengu 3.500 króna inneign hjá versluninni sem rennur út fljótlega á nýju ári.

Sitt sýnist hverjum um gjöfina; sumum finnst frábært að fyrirtæki gefi starfsfólki sínu á annað borð jólagjöf á meðan öðrum finnst gjöfin niðurlægjandi.

Fjörugar umræður um þetta fóru fram í Facebook-hópnum Costco – Gleði í gærkvöldi. Allt hófst þetta á innleggi frá Guðjóni nokkrum sem sagði einfaldlega: „Starfsfólk Costco fékk 3500 króna gjafabréf sem rennur út í febrúar næstkomandi.“

24 mínútum og 49 athugasemdum síðar var Guðjón búinn að loka fyrir athugasemdir við færsluna.

Engin skylda að gefa jólagjafir

Eins og að framan greinir skiptist fólk í tvær fylkingar. Kristján segir til dæmis: „Mörg fyrirtæki gáfu starfsmönnum sínum enga jólagjöf?“  Björgvin og Bryndís taka í sama streng og segjast ekki hafa fengið neitt frá sínum vinnuveitanda. „Vona að þetta fólk sé þakklátt fyrir að fá eitthvað,“ bætir Bryndís við.

Þá segir Aðalbjörg að fyrirtæki séu ekki skyldug til að gefa jólagjafir. Þau séu skyldug til að greiða desemberuppbót en hitt sé valfrjálst.

Guðjón, sá sem hóf umræðurnar, blandar sér svo í þær og segir: Fyndist nú betra að gefa ekkert frekar en 3500 og það inneign.“ Svo benda einhverjir á hvað sé hægt að kaupa fyrir inneignina og kemur fólk með hugmyndir eins og 80 poppkornspoka eða 12 pylsur með gosi.

„Það er fólk að deyja í heiminum“

Ósk segir að þetta sé örugglega vel meint en um leið niðurlægjandi gjöf en Agnes höfðar til samvisku fólks. „Pls ekki vera að kvarta yfir einhverju svona. Það er fólk að deyja i heiminum…. það er margt verra en 3500kr.“

„Eruð þið i alvöru að réttlæta þetta?,“ segir í næstsíðasta innlegginu áður en lokað var fyrir athugasemdir. „Ekki bera costco saman við smá sjoppur sem selja hamborgaratilboð og smá fyrirtæki. Costco á alveg fyrir 20.000 króna jólabónus eða meira,“ segir viðkomandi og bætir svo við að lokum: „Ég fíla að versla í costco en 3500 er brandari.“

Silja segir svo í síðasta innlegginu, áður en lokað var fyrir athugasemdir:

„Greinilegt að góðærið sé að ná toppi. Þegar fólk er farið að setja út á virði jólagjafar, í stað þess að gleðjast. Fyrirtækið er rekið eftir einhverjum ákvæðum, og þeim er algjörlega valfrjálst að gefa jólagjafir. Og það að manneskja þurfi að taka þetta svona inná sig með að pósta því á feisbúk, og einnig að taka það fram hversu veglega jólagjöf hann gaf sínum starfsmönnum segir meira heldur en „virði“ jólagjafar frá Costco. Ef þér finnst þetta svona ósanngjarnt, hafðu þá samband við stjórnarmenn Costco.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Íris hefur greitt af námsláni í 17 ár – Lánið er 800 þúsund hærra í dag: „Námslánið kæfir þig“

Íris hefur greitt af námsláni í 17 ár – Lánið er 800 þúsund hærra í dag: „Námslánið kæfir þig“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Miklum verðmætum stolið í innbroti í Lækjarsmára í nótt

Miklum verðmætum stolið í innbroti í Lækjarsmára í nótt
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Þetta er tifandi pólitísk tímasprengja í Evrópu

Þetta er tifandi pólitísk tímasprengja í Evrópu
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Pútín fjárfestir – Ætlar að hraðsmíða kjarnorkukafbáta

Pútín fjárfestir – Ætlar að hraðsmíða kjarnorkukafbáta
Fréttir
Í gær

Lítil áhætta sögð á að Íran noti Ísland til fjármögnunar gereyðingarvopna – Áhættuhópur sé þó til staðar

Lítil áhætta sögð á að Íran noti Ísland til fjármögnunar gereyðingarvopna – Áhættuhópur sé þó til staðar
Fréttir
Í gær

Fjölmiðlamaðurinn gáttaður – „Þær eru hreint furðulega dýrar“

Fjölmiðlamaðurinn gáttaður – „Þær eru hreint furðulega dýrar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vont veðurútlit fyrir verslunarmannahelgina en „ýmislegt getur gerst í millitíðinni“

Vont veðurútlit fyrir verslunarmannahelgina en „ýmislegt getur gerst í millitíðinni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framkvæmdastjóri Fraktlausna kærður fyrir hótanir í garð díselolíuþjófs – „Eina sem skiptir máli eru réttindi glæpamanna“

Framkvæmdastjóri Fraktlausna kærður fyrir hótanir í garð díselolíuþjófs – „Eina sem skiptir máli eru réttindi glæpamanna“