fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Fréttir

Óhugnaður í Garðabæ: Íris Björk sá dreng barinn á hrottalegan hátt – Annar hótaði að nauðga stúlku – „Mér varð óglatt“

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 5. nóvember 2018 09:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég sá svo ógeðfellda hluti á snappi frá hinum ýmsu krökkum sem eru frá 13-15 ára gömul að mér varð óglatt við það og þurfti að hætta að horfa vegna þess að það sem ég sá var hryllingur. Þar var verið að berja 14 ára dreng á hrottalegan hátt af 15 ára dreng og á meðan tók drengur upp myndskeið af þessu ofbeldi og deildi því.“

Þetta segir Íris Björk Tanya Jónsdóttir í færslu á Facebook-síðu sinni sem hún gaf DV góðfúslegt leyfi til að fjalla um. Í færslunni fjallar Íris um skuggahliðar samfélagsmiðla á borð við Snapchat en hún er sjálf móðir tveggja unglingsstúlkna sem hafa notað þennan feykivinsæla miðil. Íris birti færsluna eftir að hafa séð skelfilega hluti.

Hótanir um nauðgun

„Ég sá hótana skilaboð um fyrirhugaða nauðgun frá dreng á þessu reki til stelpu á sama aldri. Ég sá rifrildi og einelti af verstu sort. Þó svo að börnin mín og börn þín sem ert að lesa þetta núna séu kannski ekki gerendur þá verða þau ósjálfrátt þáttakendur í þessum snapp heimi sem er algjörlega fullkomin vettvangur fyrir svona hrylling og því getur fylgt mikill kvíði og ótti og erfitt að standa með sinni sannfæringu einn á móti hjörðinni.“

Íris segir að til að minnka líkurnar á að dætur hennar fari inn í vef sem þær komast ekki út úr þá hafi þær mæðgur tekið sameiginlega ákvörðun, eftir gott spjall, að þær eyddu Snapchat úr símanum sínum.

„Þær munu ekki vera lengur beinir né óbeinir þátttakendur í þessum sorglega raunveruleika sem gerist þarna og ég leyfi mér að fullyrða að fæstir foreldrar vita af því hvernig þetta raunverulega er. Ég vissi það ekki og bara alls ekki og taldi mig vera on top of things,“ segir hún.

Vill að Garðabær komi upp myndavélum

Íris segir í færslu sinni að enginn ætti að vera með Snapchat sem er ekki kominn með fullan þroska til að nota það á heilbrigðan hátt. „Unglingar eru ekki færir um það líffræðilega séð því framheilinn nær ekki fullum þroska fyrr en rétt um tvítugt en þetta svæði heilans stjórnar hegðun með tilvísun í dómgreind og forsjálni.“ Hún segir að unglingar nú til dags hugsi ekki alltaf út í afleiðingar gjörða sinna.

„Raunveruleiki unglinga í dag er svo brenglaður á svo margan hátt aðallega vegna áhrifa samfélagsmiðla leyfi ég mér að fullyrða, svo að margt er látið flakka þarna án þess að hugsa út í afleiðingar eða hversu óheilbrigð hegðunin er.“

Íris, sem er búsett í Garðabænum, sendir bæjaryfirvöldum ákall um að koma fyrir eftirlitsmyndavélum á stöðum þar sem unglingar safnast saman.

„Bæjaryfirvöld í Garðabæ ættu að skottast út í búð ekki seinna en strax og versla inn öryggismyndavélar og koma fyrir í undirgöngum bæjarins þar sem líkamlega ofbeldið fer fram oft á tíðum. Snappið spyr ekki um stað né stund, það er eins og versta mögulega sýking sem dreifir sér hratt og örugglega út um allt.“

Íris endar færsluna á þessum mikilvægu orðum:

„Ég tek það á mig að vera „leiðinlega“ mamman sem bannar hitt og þetta og hvet stelpurnar mínar til þess að vitna í mig þegar hjörðin gengur á þær og spyr af hverju þær séu ekki með snapp lengur og það geri ég til að vernda börnin mín. En mikið getur það samt verið erfitt en ég geri það bein í baki og gef engan afslátt. Ofbeldi er aldrei í boði. Aldrei!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

RÚV mátti ekki auglýsa Rás 2 á undan Áramótaskaupinu

RÚV mátti ekki auglýsa Rás 2 á undan Áramótaskaupinu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“
Fréttir
Í gær

Andri Snær klórar sér í kollinum yfir nýju göngubrúnni: „Hún virðist líka eiga að vera svona“

Andri Snær klórar sér í kollinum yfir nýju göngubrúnni: „Hún virðist líka eiga að vera svona“
Fréttir
Í gær

Menn á sjötugsaldri ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl – Fluttu kókaín í pottum með Norrænu

Menn á sjötugsaldri ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl – Fluttu kókaín í pottum með Norrænu