Önnur stúlka hefur stigið fram og sakað Björn Braga Arnarsson um kynferðislega áreitni. Fréttablaðið greinir frá þessu. Í Twitter-færslu Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur, sem fædd er árið 1996, segir hún að Björn Bragi hafi áreitt sig kynferðislega. Ástæða þess að Þórhildur ákvað að segja Fréttablaðinu sögu sína eru fregnir af kynferðislegri áreitni Björns Braga á Akureyri og myndband af athæfi hans sem fór í umferð á samfélagsmiðlum í gærkvöld. Einnig hefur verið fjallað um málið á Visir.is. Í samtali við Fréttablaðið segir Þórhildur:
„Ég hef verið áreitt kynferðislega af honum og fleirum. Hann er alls ekki sá eini. Ég hef aldrei sagt frá þessari kynferðislegu áreitni hans vegna þess að ég hélt að það myndi enginn trúa mér. Af því að ég á engar myndir. Ég á engin myndbönd. Samfélagið virðist einhvern veginn trúa þessu núna en mér finnst það svolítið bara vera út af þessu myndbandi.“
Fréttir af málum Björns Braga í gærkvöld og dag hafa breytt þessu. Þá segir Þórhildur jafnframt:
„Af hverju trúum við ekki öðrum einstaklingum sem eru ekki með nein myndbönd? Við þurfum bara að gera okkur grein fyrir því að þessi hegðun er aldrei í lagi sama hvort þú ert frægur eða ekki.“
Á Twitter kveðst Þórhildur vonast til að Björn Bragi læri af reynslunni.
Eins og áður hefur komið fram hefur Björn Bragi birt afsökunarbeiðni vegna málsins sem var afhjúpað í gærkvöld og sagt sig frá starfi sínu sem spyrill í sjónvarpsþættinum Gettu betur á RÚV. Enn fremur hafa nokkur önnur fyrirhuguð verkefni með honum verið felld niður vegna málsins.