fbpx
Miðvikudagur 16.júlí 2025
Fréttir

Hjördís: Sláandi munur á Íslandi og Noregi – „Sé alltaf eftir því að hafa komið aftur heim“

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 26. október 2018 10:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það var mikil gæfa að komast til Noregs og ég sé alltaf eftir því að hafa komið aftur heim,“ segir Hjördís B. Ásgeirsdóttir, félagsliði á hjúkrunarheimili, sem hefur reynslu af því að búa bæði í Noregi og á Íslandi. Hjördís segir að munurinn á því að búa og starfa á Íslandi samanborið við Noreg sé mikill.

Hjördís er ein þeirra sem segir sögu sína í átakinu Fólkið í Eflingu.

Hjördís hefur alla tíð verið virk á vinnumarkaði og var hún raunar aðeins tíu ára þegar hún byrjaði í sínu fyrsta starfi. Hún passaði börn, bar út dagblöð og þegar hún var 16 ára fór hún á vertíð í Vestmannaeyjum. Eftir að hafa búið á Akureyri með kærasta sínum, þar sem hún eignaðist sitt fyrsta barn af fimm, flutti hún suður þar sem hún prófaði ýmislegt; var deildarstjóri á leikskóla, rak sjoppu og tók við rekstri bakarísins í Hagkaup í Kringlunni svo dæmi séu tekin. Svo flutti fjölskyldan til Noregs.

Mikill munur á Noregi og Íslandi

„Ég og fjölskyldan mín fluttum til Larvik í í Noregi árið 2010 og bjuggum við þar í tvö ár. Það er mikill munur á laununum hér heima og í Noregi. Húsaleigan er lægri líka, reglan er sú að húsaleigan eða afborganir af fasteign sé aldrei meiri en sem nemur einum þriðja eða einum fjórða af laununum. Ég fékk starf sem móðurmálskennari fyrir íslensku börnin, þrátt fyrir enga norsku kunnáttu, þá vildu þau samt sem áður fá mig í starfið. Ég hafði ekkert val um annað en að læra að skrifa og tala norskuna á ótrúlega stuttum tíma, einum og hálfum mánuði, og það tókst,“ segir Hjördís í sögu sinni.

Hún segir að launin hafi komið henni á óvart. Hún hafi verið með 7.600 krónur á tímann, en þar sem aðeins um hlutastarf hafi verið að ræða vann hún einnig í verksmiðju, Steni AS, þar sem hún fékk 3.800 krónur á tímann.

Börnunum sinnt ótrúlega vel

„Norðmenn leggja mikið upp úr því að öll börn hafi áhugamál og sinni þeim. Þeir segja, ef börnin stunda sín áhugamál þá sé árangur og áhugi fyrir náminu miklu meiri. Ég kem seint til með að gleyma því þegar skólinn hringdi í mig einn daginn og sagði mér að sonur minn sem var þá 10 ára væri mjög góður teiknari og hefði einnig áhuga á tónlist og spurði mig hvort að þau mættu senda hann í grafíska teiknun og gítarkennslu, allt færi það í gegnum skólann þó svo að hann muni sækja þessa tíma fyrir utan skólatíma, skólinn sæi alfarið um kostnaðinn. Ég samþykkti það auðvitað, en ég hafði aldrei þekkt svona lagað og var svo hissa að skólinn hefði áhuga og sinnti þörfum barnsins míns. Það var rosalega mikið lagt upp úr því að krakkarnir stundi áhugamál og það er talið auka líkurnar á því að þeim gangi betur í skólanáminu.“

Hjördís segir að dóttir hennar hafi farið í menntaskóla. Þar fékk hún allar bækur og fartölvu og fartölvutösku sem hún gat notað undir bækurnar sínar. Þá sá skólinn um viðhald á tölvunni og gat dóttir hennar valið um að kaupa hana á 500 krónur eða skila henni að námi loknu.

„Ástæðan fyrir því að skólinn útvegaði tölvu fyrir skólanámið var vegna þess að þau þurftu að sækja hluta af náminu á netinu.“

Mikil gæfa að komast til Noregs

Svo kom að því að fjölskyldan flutti aftur heim til Íslands. Það gerðist eftir að í ljós kom að húsið sem fjölskyldan leigði var alþakið í myglusveppum.

„Það gekk ekkert að leita að húsnæði sem hentaði okkur svo ég sá ekki fram á annað en að við yrðum að flytja heim aftur, þar sem við höfðum öruggt húsnæði. Einhverra hluta vegna þá hugsaði ég ekki út í það að leita að húsnæði í næsta bæjarfélagi, því miður. Það var mikil gæfa að komast til Noregs og ég sé alltaf eftir því að hafa komið aftur heim. En börnin eru flutt að heiman og farin að búa hérna, og ég gæti aldrei hugsað mér að vera svo langt frá þeim og barnabörnunum,“ segir hún.

Álag á hjúkrunarheimilinu

Þegar heim til Íslands var komið sótti Hjördís um vinnu á hjúkrunarheimili. Hún fékk starfið og líkaði vel. „Yndislegur staður að mínu mati, þar sem mikið er lagt upp úr félagslífi fyrir heimilisfólkið og alltaf verið að hvetja starfsfólkið til þess að afla sér þekkingar í starfinu. Ég var hlaupari, hljóp á milli deilda þar sem þörfin var mest, það er mikið álag að vinna á svo mörgum deildum og vita sjaldnast á hvaða deild maður lenti og átti til með að vinna daginn eftir. Ég var svo heppin að hafa mjög góðan yfirmann sem skapaði góðan vinnuanda.“

Hjördís segir að því miður hafi hún þurft að segja upp vegna þess að yfirmaðurinn var á móti reykingum á vinnustaðnum. „…og það gengur ekki upp til lengdar að vera laumast út til að reykja, maður getur ekki boðið sjálfum sér upp á það. Ég sem fullorðin kona fer ekki að laumast út til að reykja eins og hver annar unglingur.

Ég sagði við yfirmann minn að ég teldi mig vera meiri manneskju en svo að ég þyrfti að leggjast svo lágt og fara á bak við hana til að fara út að reykja. Það er orðin nokkuð slæmt þegar það á að fara taka ráðin af fullorðinni manneskju og taka ákvarðanir fyrir hana í hvað hún notar frítímann sinn. Ég fékk alveg að vita það að allir í húsinu væru mjög ánægðir með störfin mín og vel það, það eina sem skyggði á var hvernig ég notaði minn eigin kaffitíma.“

Vinnur frá 8-16 og fær 240 þúsund útborgað

Svo fór að Hjördís réð sig til starfa á annað hjúkrunarheimili þar sem hún vinnur enn þann dag í dag. Og reykingarnar eru ekki eins mikið atriði.

„Aðhlynning á hjúkrunarheimili er erfið vinna og að sama skapi mjög gefandi starf. Það fellst miklu meira í þessu starfi en að veita aðstoð og aðhlynningu. Félagslegi þátturinn, nándin, skilningurinn og að kunna að hlusta, sýna virðingu og aðgát er mjög þýðingarmikill þáttur.“

Hjördís vinnur alla virka daga vikunnar frá átta til fjögur. Hún fær frí um helgar og hætt í vaktavinnu. Það þykir henni góður kostur því hún vill vera meira með krökkunum sínum og geta sótt barnabörnin á leikskólann, veitt þeim félagsskap þegar foreldrarnir vinna fram eftir.

„Það má svo sannarlega segja að það er ekki hægt að lifa á þessum launum sem eru í boði hér heima, nema þú sért með maka og þannig á það alls ekki að vera. Það er löngu orðið tímabært að við förum að lifa eins og fólk. Við eigum að bera nógu mikla virðingu fyrir sjálfum okkur til þess að gera kröfu um að við séum ekki rænd sjálfsvirðingunni með því að þvinga okkur til að lifa við fátækt og eða við fátæktarmörk,“ segir Hjördís.

Hún er þeirrar skoðunar að til að launin séu ásættanleg þurfi að hækka skattleysismörkin. Hún fær um 240 þúsund krónur útborgað eftir skatt. Eins og aðrir þarf hún að borga reikninga; hún byrjar á að borga þá reikninga sem veita henni öryggi, til dæmis húsnæði, rafmagn og hita. Þegar búið er að borga það situr lítið eftir.

Getum lært ýmislegt af Norðmönnum

„Ég get til dæmis ekki séð fyrir mér hvernig ég ætti að geta þetta ein, hvað þá einstæðir foreldrar. Ég bý með barnsföður mínum og sem betur fer getum við látið enda ná saman með góðu skipulagi en það er heldur ekki meir en það. Ég minntist á það við mann að öll verkalýðsfélögin ættu að taka sig saman og fara fram á að persónuafslátturinn myndi hækka, þannig að það yrði ekki tekin skattur af launum undir 300 þúsund krónum. Hann var góður með sig og sagði, „það verður að vera raunhæft, það yrði aldrei samþykkt að gera þetta nema í þrepum!“ Ég sagði, jæja, og telur þú það mjög raunhæft að ég eigi að lifa af 240 þúsund krónum á mánuði? Hann svaraði „Nei það er ekki raunhæft.“

Hjördís segir að skattkerfið eigi að nýtast lágtekjufólki en ekki hátekjufólki eins og það hafi gert hingað til. Nú sé röðin komin að þeim sem minnst hafa.

„Við þurfum að vera eins og fólk og taka Norðurlöndin okkur til fyrirmyndar. Við ættum að hafa þetta eins og í Noregi, einn þriðji eða einn fjórði af launum færi í greiðslur af lánum eða húsaleigu. Verðtryggingin tekin af sem myndi valda því að íbúða- og húsaleiguverð myndi lækka töluvert. Vextir yrðu raunhæfir eins og það gerist annars staðar á Norðurlöndunum. Samfélagið hérna býður ekki upp á það að fólk eigi sér líf, ég vil geta lifað lífinu lifandi og notið þess með maka, börnum og barnabörnum. Það er minn réttur og þinn líka.“

Hjördís endar frásögnina á þessum orðum:

„Við sem þjóð erum svo sofandi, það vantar alla samstöðu, við látum svo mikið yfir okkur ganga. Stjórnmálamenn halda sætinu sínu þrátt fyrir allar sínar gjörðir, og hvert fara peningarnir? ekki fara þeir í að byggja upp gott samfélag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Eldgos hófst í nótt: Á heppilegum stað og virðist ekki ógna innviðum

Eldgos hófst í nótt: Á heppilegum stað og virðist ekki ógna innviðum
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Háttsettir embættismenn og auðkýfingar hrynja eins og flugur

Háttsettir embættismenn og auðkýfingar hrynja eins og flugur
Fréttir
Í gær

Hvað gerðist í flugslysinu mannskæða: „Þeir segja okkur aðeins það sem þeir vilja að við vitum – hinu er haldið leyndu“

Hvað gerðist í flugslysinu mannskæða: „Þeir segja okkur aðeins það sem þeir vilja að við vitum – hinu er haldið leyndu“
Fréttir
Í gær

Enn hlýrra loft í kortunum í dag

Enn hlýrra loft í kortunum í dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Myndband: Ósvífin skemmdarverk í Bergstaðastræti – Ung kona gekk á bílum

Myndband: Ósvífin skemmdarverk í Bergstaðastræti – Ung kona gekk á bílum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum kærasti Öldu reyndi að ræna henni – „Ég henti mér út úr bíln­um“

Fyrrum kærasti Öldu reyndi að ræna henni – „Ég henti mér út úr bíln­um“