fbpx
Sunnudagur 07.september 2025
Fréttir

Sex barna móðir í Breiðholti lifir stundum á núðlum og bönunum – „Ég vil ekki að börnunum mínum sé kalt“

Tómas Valgeirsson
Laugardaginn 6. október 2018 10:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég þarf ekki að telja peningana um mánaðamótin, ég vinn átta tíma á dag, fimm daga vikunnar, í fjórar vikur og þegar kaupið loksins kemur þá er það eins og að ýta á takka, það er allt horfið um leið.“

Svo mælir Clarivelle Rosento, sex barna móðir sem starfar í heimaþjónustunni í þjónustuíbúðum aldraðra á Furugrund 1 og hefur gert í fjögur ár.

Clarivelle er ein þeirra sem segja sögu sína í tengslum við verkefnið Fólkið í Eflingu. Hún vinnur fjörtíu stunda vinnuviku og aðra hvora helgi og fær greiddar 270 þúsund á mánuði eftir skatta. Segir hún það erfitt að ná endum saman og að hún hafi miklar áhyggjur af líðan hjá börnum sínum. „Launin eru svo lág að stundum borða ég sjálf bara núðlur og banana til þess að geta gefið börnunum eitthvað skárra og keypt skó og úlpur fyrir veturinn,“ segir hún.

Clarivelle flutti til Íslands fyrir 19 árum frá Filippseyjum og býr með manninum sínum og börnum þeirra í eigin húsnæði í Breiðholti. „Við konurnar frá Filippseyjum sem vinnum hérna í heimaþjónustunni erum flestar mæður með börn og ég er ekki að segja að mennirnir okkar séu latir en við tökum kannski meiri ábyrgð á heimilinu og börnunum en þeir þannig að vinnuálagið er töluvert,“ segir hún.

„Hver mánaðamót setjumst við niður með launin okkar og borgum fyrst húsnæðislánin og rafmagn, síma, net, leikskólann og mat fyrir börnin í grunnskólanum. Þegar það er greitt þá legg ég fyrir pening fyrir mat og bensíni. Þá er kannski eitthvað pínulítið eftir fyrir krakkana en pyngjan er tóm þegar kemur að mér“, segir hún.

Ofar öllu segist Clarivelle vonast til þess að börnin sín fái almennilega menntun og myndi helst vilja koma börnum sínum í betri skóla, væri hún á betri launum. Hún sótti um pláss í Ísaksskóla fyrir yngsta son sinn, fimm ára gamlan, og fékk hann inngöngu. Hins vegar varð Clarivelle þá að draga umsóknina til baka þegar hún sá að hún ætti ekki efni á skólagöngunni fyrir soninn.

„Ég vil ekki að börnunum mínum sé kalt og þau séu óhamingjusöm og ég vil gefa þeim góðan mat, þótt ég geti ekki leyft mér að kaupa fisk og lambakjöt. Ef þú borðar ekki hollan mat, þá veikist þú, og það kostar að verða veikur, þú missir vinnu og laun og það fer allt á hvolf heima við.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fulltrúi frá barnavernd boðaður á lögreglustöð eftir að ökumaður með börn í bílnum var handtekinn

Fulltrúi frá barnavernd boðaður á lögreglustöð eftir að ökumaður með börn í bílnum var handtekinn
Fréttir
Í gær

Uppgötvaði að hún ætti að minnsta kosti 77 systkini

Uppgötvaði að hún ætti að minnsta kosti 77 systkini
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Að Snorri Másson vogi sér að kvarta yfir skoðanakúgun og þöggun í kjölfarið á því að hafa beinlínis reynt að þagga niður í mér með yfirgangi, er út í hött“

„Að Snorri Másson vogi sér að kvarta yfir skoðanakúgun og þöggun í kjölfarið á því að hafa beinlínis reynt að þagga niður í mér með yfirgangi, er út í hött“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einar segir fólk hafi upplifað Kastljósviðtalið sem árás á hinsegin samfélagið – „Fautaskapur“ hjá Snorra

Einar segir fólk hafi upplifað Kastljósviðtalið sem árás á hinsegin samfélagið – „Fautaskapur“ hjá Snorra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna blandar sér í kynjaumræðuna – Ætlar að taka þátt í „alvöru baráttu“ en ekki „píkupólitík“

Sólveig Anna blandar sér í kynjaumræðuna – Ætlar að taka þátt í „alvöru baráttu“ en ekki „píkupólitík“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Diljá Mist: „Þetta er ógnvænleg þróun og óásættanleg“

Diljá Mist: „Þetta er ógnvænleg þróun og óásættanleg“