fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

WOW air hefur flug til Orlando – Sala á sætum hefst í dag

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 5. september 2018 08:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag hefst sala á flugsætum til Orlando í Flórida en WOW air hefur flug þangað þann 18. desember næstkomandi til og með 30. apríl.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að flogið verði þrisvar í viku í Airbus A321neo til Orlando International flugvallar (MCO) sem er í stuttri akstursfjarlægð frá miðbæ Orlando. Flugtíminn frá Íslandi er rétt rúmir átta klukkutímar og lent er klukkan átta að kvöldi að staðartíma.

„Veðrið í Orlando yfir vetrarmánuðina er milt en hitinn er yfirleitt í kringum 23 gráður. Orlando hefur upp á margt að bjóða fyrir alla fjölskylduna. Þar má finna hina ýmsu skemmtigarða eins og til dæmis Disney World, Universal Orlando Resort og Wizarding World of Harry Potter. Þar eru líka fjölmargir verslunarkjarnar og góðir golfvellir.“

„Orlando er skemmtilegur staður sem lengi hefur notið mikilla vinsælda hjá Íslendingum. Með því að bjóða upp á flug á hagstæðum kjörum gerum við fleirum kleift að ferðast og njóta lífsins í sólinni,“ segir Skúli Mogensen eigandi og forstjóri WOW air í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Veglegt sérblað um EM
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu