fbpx
Laugardagur 27.desember 2025

Lést eftir að hafa neitað að fylgja fyrirmælum lækna

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 3. september 2018 17:30

Natasha Home. Mynd/NCJM

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvítug stúlka lést eftir að hafa neitað að fylgja fyrirmælum lækna. Natasha Home, frá Middlesbrough á Englandi, var greind með sykursýki af tegund 1 í fyrra. Læknar sögðu henni að hún þyrfti að sprauta sig daglega með insúlíni og geta þá lifað eðlilegu lífi. Home taldi það óþarfi og féll að lokum í dá, hún lést svo um helgina. Foreldrar hennar vilja nú að dauði hennar verði öðrum víti til varnaðar.

Foreldrar Natöshu segja í samtali við breska dagblaðið Metro í dag að hún hafi verið mjög gjafmild, hún hafi hætt í háskóla og farið að vinna. Síðasta haust var hún farin að grennast og fann stöðugt fyrir miklum þorsta, móðir hennar, sem er lyfjafræðingur, ákvað þá að senda Natöshu til læknis þar sem hún var greind með sykursýki.

Hún neitaði að sprauta sig með insúlíni og vildi ekki nota aðrar aðferðir, taldi hún það óþarfi. Eftir að hafa ítrekað lent í rifrildi við foreldra sína vegna þess að hún neitaði að sprauta sig með insúlíni, flutti hún því til kærasta síns. Hvorki hann né vinir hennar vissu að hún væri með sykursýki. Að kvöldi 22. ágúst féll hún svo í dá og var flutt á sjúkrahús.

Jackie, móðir Natöshu, segir í samtali við Metro að hún voni að þetta verði öðrum víti til varnaðar. „Það þarf að hjálpa ungu kynslóðinni að skilja að þetta er ekki neitt til að skammast sín fyrir og átta sig á hversu alvarlegt þetta er.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

,,Ég vissi af pressunni þegar ég kom til félagsins“

,,Ég vissi af pressunni þegar ég kom til félagsins“
Fókus
Fyrir 18 klukkutímum

Ásgeir Kolbeins steinhissa á jólagjöf til Heru konu sinnar

Ásgeir Kolbeins steinhissa á jólagjöf til Heru konu sinnar
Fókus
Fyrir 21 klukkutímum

Áramótaspá Ellýjar Ármanns: „Hann á eftir að gera meira, hann er bara rétt að byrja“

Áramótaspá Ellýjar Ármanns: „Hann á eftir að gera meira, hann er bara rétt að byrja“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Mögulega fastur hjá sínu félagsliði út tímabilið

Mögulega fastur hjá sínu félagsliði út tímabilið
EyjanFastir pennar
Í gær

Nína Richter skrifar: Er ekki allt í jólalagi?

Nína Richter skrifar: Er ekki allt í jólalagi?
Fréttir
Í gær

Ungmenni dæmd fyrir frelsissviptingu og „sérstaklega hættulega, hrottalega og ófyrirleitna“ hópárás gegn unglingsdreng í Heiðmörk

Ungmenni dæmd fyrir frelsissviptingu og „sérstaklega hættulega, hrottalega og ófyrirleitna“ hópárás gegn unglingsdreng í Heiðmörk