fbpx
Sunnudagur 10.ágúst 2025
Fréttir

Ættum við að lengja skólaárið hjá börnunum? Davíð segir að mjög margt mæli með því

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 29. ágúst 2018 10:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Meðalgrunnskólabarn er um 179 daga í skólanum á ári. Hægt væri að stytta námstímann um eitt ár með því að lengja skólaárið um 17 kennsludaga, eða þrjár og hálfa viku. Skóladagarnir væru þá orðnir 196,“ segir Davíð Þorláksson, lögfræðingur og forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins, í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.

Þar viðrar Davíð hugmyndir um að stytta grunnskólagönguna úr tíu árum í níu með því að lengja skólaárið. Í pistlinum, sem ber yfirskriftina Sumargleymska, segir Davíð:

„Tillögur um að lengja skólaárin í grunnskólum og fækka þeim í níu hafa ekki fallið í kramið hjá öllum. Einhver spurði hvort það ætti nú að fara að hafa jóla- og sumarfríin af börnunum. Fríin eru þó lengri hér en í mörgum öðrum þróuðum ríkjum,“ segir Davíð og vitnar í rannsóknir sem Economist fjallaði um á dögunum. Þær sýndu að löng frí hefðu áhrif á námsárangur barna. Staðreyndin væru sú að börnin gleymdu því sem þau lærðu.

„Þetta á sérstaklega við um börn fátækra og innflytjenda sem hafa ekki sömu tækifæri til námslegrar örvunar utan skólans. Sumargleymskan skýrir allt að tvo þriðju af muninum á námsárangri barna af fátækum og efnameiri heimilum.“

Einhver gæti bent á að 196 dagar, í samanburði við 179 daga, væri töluverð lenging. Davíð bendir á móti á að venjulegur launamaður í fullu starfi sé 226 daga á ári í vinnu, eða sex vikum lengur.

„Lengra skólaár myndi ekki aðeins skila sér í betri námsárangri heldur myndi talsverð hagræðing verða af styttingunni sem mætti endurfjárfesta inni í kerfinu og jafnvel skila þannig enn betri árangri. Þetta myndi einnig draga úr skorti á kennurum. Þörf fyrir kennara myndi minnka um 500. Í dag eru um 700 kennarar 60 ára og eldri. Stytting grunnskólans væri augljóst framfaraskref fyrir bæði skólabörnin og þjóðarbúið og myndi stuðla að auknum jöfnuði,“ segir Davíð að lokum í grein sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilhjálmur segir að þessi aðgerð geti lækkað vexti á Íslandi hratt – Hafa stjórnvöld kjarkinn?

Vilhjálmur segir að þessi aðgerð geti lækkað vexti á Íslandi hratt – Hafa stjórnvöld kjarkinn?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt á suðupunkti eftir að Ísraelsmenn tilkynntu að þeir ætli að taka yfir Gaza

Allt á suðupunkti eftir að Ísraelsmenn tilkynntu að þeir ætli að taka yfir Gaza
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur veltir fyrir sér hvort þetta sé arftaki Pútíns

Sérfræðingur veltir fyrir sér hvort þetta sé arftaki Pútíns
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir neytendur óskuðu eftir endurgreiðslu vegna flugs – Áttuðu sig síðan á þessum mistökum

Íslenskir neytendur óskuðu eftir endurgreiðslu vegna flugs – Áttuðu sig síðan á þessum mistökum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir samráðsleysi við íbúa Ölfuss algjört – „Þögn er sama og samþykki“

Segir samráðsleysi við íbúa Ölfuss algjört – „Þögn er sama og samþykki“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“