fbpx
Fimmtudagur 07.ágúst 2025
Fréttir

Brynjar Karl með mikilvæg skilaboð – Þetta ættu allir kennarar og nemendur að lesa

Ritstjórn DV
Mánudaginn 27. ágúst 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Karl Birgisson, ungur drengur sem vakti heimsathygli fyrir hæfileika sína við að byggja úr Lego-kubbum, sendir kennurum og nemendum mikilvæg skilaboð. Brynjar er einhverfur en hann vakti sem fyrr segir mikla athygli þegar hann smíðaði ógnarstóra eftirlíkingu af Titanic úr Lego-kubbum.

Skólarnir eru byrjaðir og er tilefni skrifa Brynjar einmitt sú staðreynd.

„Mig langar að senda öllum krökkum og kennurum góða kveðju og smá skilaboð. Núna þegar skólinn er byrjaður þá skulum við muna að það eru sumir glaðir að mæta í skólann aftur en líka sumir með kvíða. Það eru oft krakkar sem eru „öðruvísi“ og eru ekki flínk í samskiptum,“ segir Brynjar á Facebook-síðu sinni í pistli, sem bæði er skrifaður á íslensku og ensku.

„Mig langar að skora á ykkur að verja krakkana sem eru öðruvísi vegna þess að það gera cool krakkar. Ég á vini í dag sem verja og samþykkja mig eins og ég er og þess vegna er ég jákvæður og glaður að mæta aftur í skólann. Einkunnirnar mínar hækkuðu og ég fór að æfa fótbolta sem engin hélt að ég gæti gert. Það er svo gott að vera samþykktur og fá að vera eins og maður er í friði þá gengur allt miklu betur. Verum cool.“

Brynjar hefur vaki mikla athygli undanfarin misseri og meðal annars haldið fyrirlestur hjá TED um einhverfu. Þá var Brynjar gerður að heiðursborgara Tennessee en þar var Titanic-líkanið til sýnis á safni sem er tileinkað þessu sögufræga skipi.

Frábært hjá þessum unga dreng en skilaboðin sem hann sendir kennurum og nemendum eiga svo sannarlega vel við nú þegar skólarnir eru að fara af stað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Umfangsmikil leit í Noregi að bandarískum blaðamanni

Umfangsmikil leit í Noregi að bandarískum blaðamanni
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Íris tók námslán árið 2011 sem hún er ekki byrjuð að borga – „Og hvar stendur það núna ef þið hélduð að BA-gráðu lánið mitt væri martröð?“

Íris tók námslán árið 2011 sem hún er ekki byrjuð að borga – „Og hvar stendur það núna ef þið hélduð að BA-gráðu lánið mitt væri martröð?“
Fréttir
Í gær

Segist ekki vilja leyniþjónustu á Íslandi

Segist ekki vilja leyniþjónustu á Íslandi
Fréttir
Í gær

Segja útlit fyrir að gosinu sé lokið

Segja útlit fyrir að gosinu sé lokið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Systir Kim Jong-un segir að Trump verði að sætta sig við raunveruleikann

Systir Kim Jong-un segir að Trump verði að sætta sig við raunveruleikann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að loka eigi Reynisfjöru þegar aðstæður krefjast – „Afþakka ég skítakomment og skammir í garð þeirra sem hafa farist í Reynisfjöru“

Segir að loka eigi Reynisfjöru þegar aðstæður krefjast – „Afþakka ég skítakomment og skammir í garð þeirra sem hafa farist í Reynisfjöru“