

Alex Song, fyrrum leikmaður Arsenal og Barcelona, hefur fundið sér nýtt lið eftir tveggja ára dvöl í Rússlandi.
Ferill song hefur verið á niðurleið síðustu ár eftir að hafa verið hjá Barcelona í fjögur ár þar sem tækifærin voru fá.
Song var fyrir það á mála hjá Arsenal þar sem hann spilaði 138 deildarleiki á sex árum.
Song var síðast á mála hjá Rubin Kazan í Rússlandi en lék aðeins 22 deildarleiki á tveimur árum.
Kamerúninn hefur nú gert samning við lið FC Sion í Sviss en hann skrifaði undir til ársins 2020.
Sion leikur í svissnensku úrvalsdeildinni og hafnaði í sjötta sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.