fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Fókus

Engin tíðindi

Fallið er enn í hægagangi

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 25. september 2016 10:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein af þeim þýddu sakamálasögum sem nú eru á markaði er Ekkjan eftir Fionu Barton. Aðalpersónan er Jean Taylor, sem missir mann sinn en hann hafði verið sakaður um skelfilegan glæp gegn barni. „Aðeins ekkjan veit sannleikann“ stendur stórum stöfum á kápu bókarinnar og gefur til kynna að þarna sé alls ekki allt sem sýnist. Sagan er uppgjör ekkjunnar við eiginmanninn og liðna atburði en meinið er að þar kemur sáralítið á óvart.

Strax í upphafi fær lesandinn á tilfinninguna að ljóst sé hvað hafi gerst. Venjan í bókum eins og þessum er að höfundur kemur lesandanum nokkrum sinnum á óvart með óvæntum uppljóstrunum. Það gerist ekki hér. Sagan heldur áfram að vera nokkurn veginn eins og lesandinn bjóst við. Þetta eru vissulega vonbrigði. Það sem heldur sögunni hins vegar uppi er hliðarsagan af ósvífnum fjölmiðlamönnum sem ætla sér að ná skúbbi og líta svo á að tilgangurinn helgi meðalið. Þarna tekst höfundinum vel upp. Lýsingarnar á því hvernig ekkjan er lokkuð og blekkt af pressunni eru margar hverjar fjarska góðar.

Bókin er fremur laglega skrifuð og persónusköpun er ágæt en þarna er ekki hin nauðsynlega undirliggjandi spenna og því flettir lesandinn blaðsíðunum ekki í eftirvæntingu. Það eina sem kemur á óvart í þessari bók er hversu lítið kemur á óvart.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Brjáluð breyting á klámdrottningunni – Sjáðu myndbandið

Brjáluð breyting á klámdrottningunni – Sjáðu myndbandið
Fókus
Í gær

Grátbað um að leika ekki í þessu atriði í One Tree Hill

Grátbað um að leika ekki í þessu atriði í One Tree Hill
Fókus
Fyrir 2 dögum

Allt breyttist hjá Dagbjörtu þann 2. desember – „Líf mitt hefur aldrei verið eins“

Allt breyttist hjá Dagbjörtu þann 2. desember – „Líf mitt hefur aldrei verið eins“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Svona hafði hún efni á „dýra“ Íslandi

Svona hafði hún efni á „dýra“ Íslandi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 hlutir sem Sara hefði viljað vita áður en hún hóf heilsuvegferð sína – „Trúðu mér, ef ég gat þetta þá getur þú það líka“

8 hlutir sem Sara hefði viljað vita áður en hún hóf heilsuvegferð sína – „Trúðu mér, ef ég gat þetta þá getur þú það líka“
Fókus
Fyrir 3 dögum

O heldur áfram að raka inn verðlaunum

O heldur áfram að raka inn verðlaunum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Eitt dularfyllsta sakamál síðari ára – Hvað gerðist í lyftunni?

Eitt dularfyllsta sakamál síðari ára – Hvað gerðist í lyftunni?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Matvörurnar sem eru hættar í framleiðslu en Íslendingar sakna

Matvörurnar sem eru hættar í framleiðslu en Íslendingar sakna