Félagaskiptaglugginn á Íslandi lokar í kvöld og má búast við talsverðu fjöri í dag.
Guðjón Pétur Lýðsson hefur fengið leyfi frá Val til að fara frá félaginu, hann er ósáttur í herbúðum liðsins.
Edvard Börkur Edvardsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Val, staðfesti við Morgunblaðið seint í gærkvöldi að félagið hefði samþykkt tilboð tveggja félaga í leikmanninn; bikarmeistara ÍBV og KA
Fleiri lið reyna hins vegar að fá Guðjón en Breiðablik og KR eru þar á meðal samkvæmt heimildum 433.is.
Líklegt er að Valur setji nokkuð háan verðmiða á Guðjón en hann verður líklega í kringum 2-3 milljónir.