FH hefur krækt í Jónatan Inga Jónsson en hann kemur til FH frá AZ Alkmaar í Hollandi.
Jónatan er sóknarsinnaður leikmaður sem er fæddur árið 1999.
Honum tókst ekki að brjóta sér inn í aðallið AZ og hefur ákveðið að koma heim.
Jónatan ólst upp hjá FH áður en hann hélt til AZ árið 2015 þá aðeins 16 ára gamall.
Hann gæti fengið tækifæri með FH í Pepsi deildinni í sumar en deildin hefst um helgina og þar fer FH í heimsókn til Grindavíkur í fyrstu umferð.
FH hefur samið við Jónatan Inga Jónsson út keppnistímabilið 2019. Jónatan er uppalinn FHingur sem við bjóðum hjartanlega velkominn aftur heim í Kaplakrika?. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/5im8K7GGJ3
— FHingar.net (@fhingar) April 23, 2018