Albert Guðmundsson byrjaði á meðal varamanna er meistararnir í PSV heimsóttu Roda í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld.
PSV varð meistari á sunnudag og var liðið ekki í sínum besta gír í kvöld.
Albert kom inn sem varamaður á 66 mínútu leiksins en leiknum lauk með 2-2 jafntefli.
PSV jafnaði leikinn undir lok leiksins en Albert hefur fengið nokkur tækifæri í vetur.
Tækifærunum gæti fjölgað nú undir lok móts eftir að liðið varð meistari.