Í Kiljunni í kvöld verður sagt frá heimildarmynd Erlendar Sveinssonar sem fjallar um Thor Vilhjálmsson rithöfund og göngu hann um pílagrímaveginn fræga um norðurhéruð Spánar til borgarinnar Santiago de Compostela. Kvikmynd Erlendar nefnist Draumurinn um veginn og verður fyrsti hluti hennar frumsýndur í Háskólabíói á föstudag.
Leið pílagrímanna er 800 kílómetra löng, við fylgumst með göngu hins áttræða Thors, stöðum á veginum og fólki sem hann hittir. Inni myndina er fléttað þulartexta og brotum úr bókum Thors.
Göngur um Jakobsveginn hafa tíðkast í þúsund ár – en sagnir herma í að í dómkirkjunni í Santiago séu bein postulans Jakobs.
Í þættinum verður einnig rætt við Kristínu Steinsdóttur rithöfund um skáldsögu hennar sem nefnist Ljósa. Bókin gerist fyrir og eftir aldamótin 1900 og fjallar um litríka konu sem býr í sveit en veikist af geðhvarfasýki. Bókin er lauslega byggð á ævi ömmu Kristínar.
Páll og Kolbrún fjalla um ævisögu Gunnars Thoroddsen eftir Guðna Th. Jóhannesson og bókina Alvöru leiksksins, en það er ævisaga Gunnars Eyjólfssonar sem Árni Bergmann skráði.
Bragi Kristjónsson segir frá blaðamanninum og þýðandanum Karli Ísfeld, sem meðal annars íslenskaði Góða dátann Sveijk.