Eftir þrjá daga er liðinn mánuður frá mótmælunum á Austurvelli.
Þá ruku stjórnmálamenn upp til handa og fóta og ætluðu að koma til móts við kröfur þeirra sem stóðu á Austurvelli.
Jóhanna setti mikið samráðsferli í gang, það voru haldnir margir fundir. En síðan hefur ekkert heyrst, nema að niðurstaðan virðist helst vera sú að flatar afskriftir séu ófær leið. Innan stjórnarliðsins voru ýmsir sem reiddust henni fyrir að ljá yfirleitt máls á þessu.
Á fimmtudaginn er aftur boðað til mótmæla. Við vitum ekki hvað þau verða fjölmenn. Þennan dag kemur þing aftur saman eftir kjördæmaviku og Norðurlandaráð.
Kannski er von á tillögum frá ríkisstjórninni af þessu tilefni?
Ef ekki verða menn bara að rýna í hugmyndir Sjálfstæðismanna um atvinnusköpun – þar er talað um 22 þúsund ný störf á næstu þremur árum, álverum í Helguvík og á Bakka, auknum þorskkvóta og að fé úr lífeyrissjóðum verði notað í fjárfestingar. Og svo hugmyndir um að lengja í húsnæðislánum.
Það er allavega umræðunnar virði.