fbpx
Fimmtudagur 14.ágúst 2025
Eyjan

Þorsteinn Pálsson og miðjan í stjórnmálum

Egill Helgason
Föstudaginn 8. október 2010 11:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti ræðu á fundi hjá Félagi atvinnurekenda 6. október. Þorsteinn boðar það sem hann kallar Hófsemdarstefnu – og vill að þungamiðja stjórnmálanna færist inn á miðjuna. Ræðan er athyglisverð, en það er spurning hvort menn verði ekki að segja B fyrst þeir eru búnir að segja A. Er mönnum eins og Þorsteini vært lengur í Sjálfstæðisflokki sem þeir telja að sé á valdi öfga? Hvað til dæmis ef boðað yrði til kosninga í vetur – myndi Þorsteinn þá styðja sinn gamla flokk?

Þorsteinn segir í ræðunni:

„Sósíalistar í Vinstri grænum ásamt meirihluta Sjálfstæðisflokksins eru nú Þrándur í Götu frekara samstarfs Íslands við Evrópuþjóðirnar. Þar með er útilokað að íslensk heimili og íslenskt atvinnulíf geti reist nýja framtíð á stöðugri mynt.

Grundvallarágreiningur er hins vegar á milli Sjálfstæðisflokksins og sósíalista í Vinstri grænu um skattamál, orkunýtingu og fiskveiðistefnu. Þessir flokkar geta því ekki unnið saman þó að þeir eigi samleið í Evrópumálum og peningamálum.

Evrópumálin útiloka samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar þótt ágreiningur á öðrum sviðum sé brúanlegur.

Komi til þess að Samfylkingin króist af í Evrópumálunum er líklegt að hún gefi þau fremur eftir gagnvart samstarfsflokknum í núverandi ríkisstjórn en Sjálfstæðisflokknum.

Ólíklegt er að Samfylkingin myndi í því falli kjósa að standa utan stjórnar. Þó er ekki unnt að útiloka það.

Þetta er einföld mynd af þeirri óleysanlegu málefnakreppu á vettvangi stjórnmálanna sem veldur stöðnun efnahagslífsins og upplausn í samfélaginu.

Eigi þessi staða að breytast þarf þingmönnum á miðju og hægri væng stjórnmálanna sem styðja frekari Evrópusamvinnu  að fjölga til muna. Ella verður málefnakreppan viðvarandi.

Telja verður líklegt  að einhvers konar þróun af þessu tagi muni eiga sér stað. Annað væri merki um varanlega grundvallarbreytingu á viðhorfi fólks á miðju og hægri væng stjórnmálanna.

Smám saman mun koma í ljós að pólitískir og efnahagslegir hagsmunir  kalla á að slíkt hugmyndafræðilegt jafnvægi verði á ný að veruleika í íslenskum stjórnmálum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing
Eyjan
Fyrir 5 dögum

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Yrkir byggir upp í Urriðaholti

Yrkir byggir upp í Urriðaholti