fbpx
Mánudagur 21.júlí 2025
Eyjan

Frá glæpahöfuðborginni í Landsbankann

Egill Helgason
Fimmtudaginn 22. júlí 2010 12:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á árunum sem Björgólfur Thor Björgólfsson efnaðist í St. Pétursborg var hún glæpahöfuðborg Rússlands.

Í merkri bók sem nefnist Black Earth skrifar bandaríski blaðamaðurinn Andrew Meier meðal annars um Pétursborg á árunum í kringum 2000. Maier bjó þá í Rússlandi og vann að sinni miklu bók sem er ein sú vandaðasta sem fjallar um Rússland eftir fall kommúnismans.

Hann segir að á þessum tíma hafi borgin verið bæli þjófa og spilltra stjórnmálamanna. Morð voru þar daglegt brauð, eitt hið frægasta var árið 2000 þegar fjármálastjóri brugghússins Baltika var drepinn  af launmorðingja. Stríð milli glæpasamtaka geisuðu um alla borgina. Skipulögðu glæpasamtökin, grupiroviki, stjórnuðu í raun borginni. Á þessum tíma tekst Björgólfum að verða ríkir á því að brugga áfengi.

Það stappar nærri bilun að Björgólfur og faðir hans – maður sem skildi eftir sig sviðna jörð eftir viðskipti á Íslandi – skyldu fá að kaupa elsta og virtasta banka Íslands.

Björgólfur hefur svo haldið áfram viðskiptum víða um Austur-Evrópu, ekki síst í Búlgaríu sem er frægt glæpabæli. Margir eru þeirrar skoðunar að það hafi verið mikil mistök að hleypa Búlgaríu inn í Evrópusambandið – þar hefur nefnilega lítið sem ekkert verið gert til að uppræta glæpastarfsemina sem er eins og plága í landinu.

Björgólfur Thor segist nú ætla að borga skuldir sínar. Jú, hann ætlar að passa upp á að missa ekki endanlega tökin á Actavis. En ætla hann og pabbi hans að borga Icesave?

Þá fyrst værum við farin að tala saman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Áslaug Arna aftur komin á laun þrátt fyrir námsleyfi – Fær 3,1 milljónir þar til varamaður tekur við

Áslaug Arna aftur komin á laun þrátt fyrir námsleyfi – Fær 3,1 milljónir þar til varamaður tekur við
Eyjan
Fyrir 1 viku

710 klukkustundir og 10 mínútur af þingfundum á árinu en bara 35 frumvörp af 131 samþykkt

710 klukkustundir og 10 mínútur af þingfundum á árinu en bara 35 frumvörp af 131 samþykkt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingfundur hefst kl. 10 – Þrjú mál á dagskrá fyrir sumarfrí

Þingfundur hefst kl. 10 – Þrjú mál á dagskrá fyrir sumarfrí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu