fbpx
Mánudagur 21.júlí 2025
Eyjan

Hrærigrautur þjóða

Egill Helgason
Þriðjudaginn 20. júlí 2010 12:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er merkilegt að sjá hversu fjölbreyttar manntegundir maður sér hér í Tyrklandi.

Maður áttar sig á því hvílíkur hrærigrautur þjóða- og þjóðarbrota Anatólíuskaginn hefur verið í gegnum tíðina.

Hér sér maður smávaxið dökkt fólk en líka hávaxið og ljóshært og allt þar á milli og alls kyns andlitsfall. Margbreytileikinn kemur manni mjög á óvart.

Uppruni fólksins sem byggir Tyrkland er líka mjög margvíslegur og í raun mjög erfitt að átta sig á honum – og mun vera eldfimt efni í Tyrklandi.

Hinir eiginlegu Tyrkir komu hingað fremur seint, austan af sléttum Asíu. Þeir hafa blandast við fólk af grískum, kúrdískum, búlgörskum, armenskum, albönskum, bosnískum, sirkassískum, írönskum, assýrískum og arabískum uppruna, auk þess sem hér hafa verið gyðingar og  sígaunar og fleiri þjóðir.

Þannig er þjóðernið alls ekki einhlítt í þessum heimshluta. Það er heldur ekki gefið að þeir Grikkir sem maður hittir séu afkomendur fornra Aþeninga eða Spartverja. Þeir gætu alveg eins verið komnir af Albönum eða Búlgörum.

800px-Flag_of_Turkey.svg

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin

Sigmar Guðmundsson: Fundarslit Hildar Sverrisdóttur settu aukna hörku í þinglokin
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Áslaug Arna aftur komin á laun þrátt fyrir námsleyfi – Fær 3,1 milljónir þar til varamaður tekur við

Áslaug Arna aftur komin á laun þrátt fyrir námsleyfi – Fær 3,1 milljónir þar til varamaður tekur við
Eyjan
Fyrir 1 viku

710 klukkustundir og 10 mínútur af þingfundum á árinu en bara 35 frumvörp af 131 samþykkt

710 klukkustundir og 10 mínútur af þingfundum á árinu en bara 35 frumvörp af 131 samþykkt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingfundur hefst kl. 10 – Þrjú mál á dagskrá fyrir sumarfrí

Þingfundur hefst kl. 10 – Þrjú mál á dagskrá fyrir sumarfrí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu