Það er skrítin hugmynd að hér brjótist út óeirðir eftir að skýrsla rannsóknarnefndar birtist og að lögregla þurfi að vera viðbúin.
Eina hættan á að upp úr sjóði er að ekkert bitastætt sé í skýrslunni, hún sé eintómt moð. Þá held ég að margir væru tilbúnir að rölta niður á Austurvöll og hrópa.
Og að fjölmiðlarnir á fyrsta degi íþyngi okkur of mikið með viðtölum við þá sem eru teknir fyrir í skýrslunni og viðbrögðum þeirra.
Því fyrst eigum við að fá að vita nokkuð nákvæmlega hvað stendur í henni – áður en við þurfum að hlusta á spunann.
Í því sambandi má ekki gleyma að tólf stjórnmála- og embættismenn sem þarna koma við sögu hafa haft nokkra mánuði til að undirbúa málsvörn sína.