Ingibjörg Sólrún Gisladóttir hefur tvívegis stigið fram frá því hún dró sig í hlé og gefið yfirlýsingar sem eru óþægilegar fyrir Samfylkinguna.
Í fyrra skiptið setti hún fram aðra skoðun á Icesave en hefur verið viðtekin í flokknum. Og nú segir hún í viðtali að hugsanlega sé rétt að fresta aðildarviðræðum við ESB.
Ingibjörg Sólrún á varla afturkvæmt í forystu flokksins, enda er sjálfsagt lítil eftirspurn í því. Hins vegar afhjúpa orð hennar að Samfylkingin er eins og höfuðlaus her – og að flokkurinn virðist vera ófær um að skýra út fyrir þjóðinni hvers vegna hún ætti að ganga í ESB eða að beita sér af einhverjum sannfæringarkrafti í því máli.