fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Eyjan

Kynbundið ofbeldi og bindindishugsjónin

Egill Helgason
Miðvikudaginn 31. mars 2010 20:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar ég var lítill drengur og kom fyrst til Danmerkur var farið með mig á veitingahús sem kallaðist Kvindernes almennyttige restaurant. Þetta var, minnir mig, staður sem var stofnaður af dönskum konum sem áttu þá hugsjón að karlar hættu að drekka áfengi. Líklega voru reknar fleiri restaurasjónir undir þessu heiti.

Á þessum stöðum var ekki veittur bjór né annað áfengi. Þótti almennt þunnur þrettándi í Danmörku.

Einn lesandi síðunnar minntist á það í athugasend að kvenréttindakonur á fyrri hluta síðustu aldar hefðu gjarnan verið áhugakonur um bindindi. Þær vissu að fátt leikur heimilin verr en drykkjúsjúkur heimilisfaðir. Það voru ekki síst konur sem á sínum tíma hvöttu til áfengisbanns.

Nú er, eins og lesandinn bendir á, þetta sjaldan rifjað upp. Það er  fremur lögð áhersla á „vínmenningu“. Sem er auðvitað algjör þversögn þegar Íslendingar eiga í hlut. Þeir eru þjóð sem lærir aldrei að umgangast áfengi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip
Eyjan
Fyrir 1 viku

YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag

YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK

Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK