fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Eyjan

Tengsl

Egill Helgason
Mánudaginn 22. mars 2010 17:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andri Geir Arinbjarnarson skrifar athyglisverðan pistil eins og oft áður:

— — —

„Hvað vissi stjórn Landsbankans um útlánastarfsemi bankans?   Voru þeir einstaklingar sem sátu í stjórn Landsbankans til skrauts eða voru þetta fagmenn sem stýrðu bankanum af reynslu og innan lagaramma FME?  Hverjir höfðu aðgang að lánabók Landabankans? Var fólki sem vissi hvað var að gerast mútað til að þegja?  Ef útlán Landsbankans standast ekki lög hvaða ábyrgð bera fyrrverandi stjórnarmenn sem sátu vaktina þegar ólögleg starfsemi fór fram? Hvers vegna hefur þessi rannsókn tafist um 6 mánuði?

Hvaða gerðu starfsmenn og endurskoðendur bankans til að koma réttum og tímanlegum upplýsingum til stjórnar bankans.  Sérstaklega, hvert var samband innri endurskoðunar, endurskoðanda bankans og formanns endurskoðunarnefndar stjórnar bankans (ef sú nefnd var þá til!)?  Hvaða stjórnarmenn Landsbankans voru löggiltir endurskoðendur eða lögfræðingar?

Ef um lögbrot er að ræða verður athyglisvert að fylgjast með hvernig verður tekið á þessari elítu sem stýrði og stjórnaði Landsbankanum.  Munu hin gífurlega sterku pólitísku tengsl sem þessir aðilar hafa ekki vega þyngra en hinn íslenski lagabókstafur og hvernig getur Hæstiréttur tekið á þessu?  Þar sitja menn sem voru skipaðir af sama manni sem svo dyggilega studdi Landsbankamenn?  Þetta eru tengsl af þeirri tegund sem ekki má ræða á Íslandi.

Látum hinn mikla kattarþvott byrja!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Komin í leitirnar
Gravenberch velur Salah