fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Eyjan

Vondar minningar um herforingjastjórn og borgarastríð

Egill Helgason
Fimmtudaginn 18. mars 2010 10:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grikkland á við ýmis vandmál að stríða. Stjórnkerfið er spillt, stjórnmálamenn eru eins og smákóngar, þjóðinni er mjög illa við að greiða skatta – undir yfirborðinu þrífst stórt svart hagkerfi. Grísk stjórnvöld notuðu evruna sem skálkaskjól til að skuldsetja sig fram úr hófi, en þegar syrti á álinn fór þáverandi ríkisstjórn falsa hagtölur. Grikkland upplififði líka bólutíma þegar ofvöxtur hljóp í bankakerfið, húsnæðisverð rauk upp úr öllu valdi, fjölmenn stétt innflytjenda vann lökustu störfin. Grikkir hafa hins vegar ekki margt sem þeir geta framleitt og flutt út.

Á sama tíma naut almenningur talsverðrar velmegunar, Grikkir töluðu um að þeir væru að fara fram úr Ítalíu, Grikkland varð neysluhagkerfi, alls kyns velferðarþjónusta batnaði, ekki síst á stjórnartíma PASOK, sósíaldemókrataflokksins sem nú er aftur við völd eftir að hin svikula og vanhæfa ríkisstjórn Karamanlis er farin frá.

Svo hrundi þetta allt. Ríkisstjórn Papandreous glímir við vandann; Papandreou þykir almennt frekar ærlegur maður sem reynir að segja sannleikann um ástandið. En hann er ekki lýðforingi eins og hinn frægi faðir hans sem einnig var forsætisráðherra. Það er spurning hvað hann endist lengi í embætti.

Það er hins vegar afskaplega furðulegt að sjá menn sem eru yst til hægri og yst til vinstri fagna því þegar verkföll grípa um sig í Grikklandi og barist er á götunum  – Grikkir hafa kannski tekið upp ýmsa vonda ósiði alþjóðakapítalismans, en að mörgu leyti geta þeir sjálfum sér um kennt.

Grikkir eru smáþjóð með afskaplega háar hugmyndir um sjálfa sig. Það eru þeir sem bjuggu til heitið barbara um nágrannaþjóðir sínar. Eins og önnur smáþjóð sem á gamla bókmenntahefð telja þeir sig vera algjörlega einstaka í veröldinni. Þeim er líka mjög gjarnt að kenna öðrum um ófarir sínar (sérstaklega Tyrkjum) – og nú Þjóðverjum.

En það er vont að horfa upp á mikla pólitíska ólgu í Grikklandi. Síðast þegar það gerðist rændi völdum herforingjastjórn sem sat í sjö ár. Og þaráður háðu Grikkir blóðuga borgarastyrjöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt