Steingrímur J. bregst reiður við á þingi Samtaka atvinnulífsins þegar ríkisstjórnin er gagnrýnd fyrir að gera ekki neitt í atvinnumálum.
Samtök atvinnulífsins hafa alltaf verið málsvarar stóru fyrirtækjanna, stórverktaka, stóreigenda og bankanna meðan þeir voru og hétu.
Og krafa þeirra er aðallega um stóriðju og stórframkvæmdir.
Það er einföld spurning sem þarf að svara, og það ætti ekki að vera svo erfitt:
Er ástæðan fyrir því að hér eru engar stórframkvæmdir farnar í gang sú að stjórnvöld standa í veginum – t.d. andúð VG á stóriðju – eða er ástæðan sú að það er einfaldlega ekki til fjármagn og ekki hægt að nálgast það?
Svar óskast.