Uffe Elleman Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Dana, gefur ekki mikið fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna okkar heldur skrifar grein á blogg sitt og nefnir hana Absúrdleikhús á Íslandi. Nýr samningur sé í burðarliðnum, það hafi verið farið með miklar ýkjur þegar upphæðirnar sem um er að tefla í Icesave séu nefndar í fjölmiðlum erlendis – þar nefnir hann sérstaklega Einar Má Guðmundsson – og svo klykkir hann út með að segja að hann eigi erfitt með að sjá Ísland fyrir sér í ESB, enda sé búið að magna upp þær tilfinningar að Íslendingar séu smáþjóð sem sé kúguð af stórþjóðum. Uffe segist óttast að þjoðaratkvæðagreiðslan muni spilla fyrir nýjum samningi.