fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Eyjan

Dapurt umsóknarferli

Egill Helgason
Föstudaginn 26. febrúar 2010 10:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er merkilegt að fylgjast með því hversu illa er staðið að málum varðandi aðildarumsóknina að ESB. Kynning málsins er öll í skötulíki, og það er makalaust hvernig það hefur náð að þvælast saman við Icesave.

Ríkisstjórnin virðist ekki hafa á einum einasta stjórnmálamanni að skipa sem getur skýrt almennilega út hvers vegna Íslendingar ættu að ganga í ESB. Þar er enginn sem getur hrifið fólk, enginn sem getur brugðið upp framtíðarsýn.

Og hluti stjórnarliðsins vill að umsóknin verði dregin til baka hið snarasta.

Eins og sakir standa bendir allt til þess að aðild að Evrópusambandinu verði kolfelld þegar þar að kemur. Maður er ekki einu sinni viss að það breyti neinu að samningurinn verði hagstæður. Alls kyns lýðskrumurum og æsingamönnum vex fiskur um hrygg; það er nánast útséð með að umræðan um ESB geti orðið málefnaleg.

Þannig gæti það orðið eini árangur Samfylkingarinnar þegar hún loks fær forystu í ríkisstjórn að koma í veg fyrir að Ísland gangi í Evrópusambandið næsta aldarfjórðunginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“