fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
Eyjan

Hverjar eru eignir Landsbankans?

Egill Helgason
Mánudaginn 15. febrúar 2010 15:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lesandi síðunnar sendi þetta bréf.

— — —

Sæll Egill,

Tilefni þessa bréfstúfs, sem ég vildi biðja þig um að birta á síðunni þinni,  er að undanfarna daga hafa menn deilt um hvernig ganga muni að vinna úr eignum þrotabús Landsbankans og hversu hátt hlutfall af Icesave þessar eignir muni dekka.

Er ekki kominn tími til þess að taka þessa umræðu föstum tökum, nú þegar enn ein umferð samningaviðræðna er að hefjast?

Er það ekki sjálfsögð krafa að gert verði opinbert hvaða eignir þrotabúið telur sig eiga og hversu stór hluti þeirra kemur til skiptanna í hugsanlegum Icesave samningum?

Bjartsýnustu spár gera ráð fyrir að eignir muni duga fyrir 80-90% af kröfum Breta og Hollendinga, aðrir nefna 30%.

Þetta vekur spurningar um hvernig hægt er að komast að svo ólíkum niðurstöðum en á heimasíðu skilanefndar kemur fram að;

„The estimated value of assets is subjected to great uncertainty f.i. due to the development of the economic enviroment in Iceland and abroad which could influence the future value of the underlying assets“.

Á sama stað kemur fram að ein stærsta eign þrotabúsins er skuldabréf uppá 260 milljarða, gefið út af Nýja Landsbankanum á þrotabúið. Skuldabréfið er ríkistryggt, gengistryggt og ber vexti frá október 2008!

Þetta skuldabréf telst, samkvæmt upplýsingum skilanefndarinnar, vera 30% af heildareignum þrotabúsins.

Hvaða eignir voru keyptar út úr þrotabúinu í skiptum fyrir þetta skuldabréf?

Hefur fjármálaráðherra heimild til þess að skuldbinda ríkissjóð með þessum hætti, án samþykkis Alþingis?

sjá:
http://www.lbi.is/Uploads/document/091124%20Survey%20of%20Assets%20and%20Liabilities.pdf

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“