Ögmundur er reiður yfir Ólafi Ólafssyni og líka yfir Högum.
En það er ekki alveg nóg.
Ögmundur er einn áhrifamesti stjórnmálamaður á Íslandi. Hann er lykilmaður í öðrum stjórnarflokknum. Sem slíkur ber hann ábyrgð á því hvernig málin hafa æxlast.
Flokkurinn hans og ríkisstjórnin sem hann styður hafa í raun hannað hið nýja íslenska bankakerfi.
Það var endurreist án þess að svarað væri kröfum um nýjar starfsreglur, gagnsæi og jafnræði. Um þær hefur verið rætt fram og til baka, allar götur frá hruninu.
Ögmundur ber líka ábyrgð á því. Hann verður að gera betur en að vera bara reiður. Og Jóhanna verður að gera meira en að vera bara agndofa.
Þessi ljósmynd myndi sóma sér vel á forsíðu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Eða er ekki sagt að mynd segi meira en þúsund orð?