Á netinu má finna þessa yfirlýsingu á slóðinni heidur.is, og áskorun til þingmanna að gangast undir hana:
— — —
Yfirlýsing
Ég er Alþingismaður. Vinnuveitendur mínir eru fólkið í landinu og til þeirra sæki ég umboð mitt.
Sem kjörinn fulltrúi þjóðarinnar heiti ég að…
- …setja hagsmuni þjóðarinnar framar hagsmunum flokksins, sjálfs mín og hvers konar sérhagsmuna.
- …flytja mál, tala og kjósa í hverju máli samkvæmt eigin sannfæringu.
- …gera í alla staði mitt besta til að standa undir því trausti sem mér er sýnt.
Af virðingu við lýðræðið heiti ég að…
- …meta skoðanir og hugmyndir á eigin verðleikum, óháð því hver setur þær fram.
- …virða þá sem eru mér ósammála, kynna mér rök þeirra og skilja til hlítar hvar okkur greinir á.
- …orða skoðanir mínar þannig að leiði til samstöðu og sáttar frekar en sundrungu.
Í anda uppbyggilegrar umræðu heiti ég að…
- …byggja skoðun mína á öllum staðreyndum mála, einnig þeim sem ekki henta mínum málstað.
- …vera tilbúinn að skipta um skoðun ef nýjar upplýsingar, skilningur eða aðstæður kalla á það – og unna öðrum hins sama.
Jafnframt heiti ég því að hafa í huga að aðrir Alþingismenn eru samstarfsmenn mínir – og eru líka hér til að vinna Íslandi vel. Það sem skilur okkur að eru þær leiðir sem við teljum líklegastar til árangurs. Við erum því ekki andstæðingar, heldur samherjar í því að vinna að hagsmunum þjóðarinnar.