fbpx
Sunnudagur 25.maí 2025
Eyjan

Gagnagrunnur um skuldaafskriftir

Egill Helgason
Fimmtudaginn 21. janúar 2010 22:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Guðmundsson sagði frá þessum hugmyndum í Silfrinu í vetur. Hann kynnti þær líka fyrir fjármálaráðuneyti og viðskiptaráðuneyti. Ég birti þær aftur af gefnu tilefni.

Gagnagrunnur um skuldaafskriftir

Ástæða hugmyndar: Verja jafnræði og endurvekja traust á helstu viðskiptabönkum þessa lands.

Megininntak: Búinn verði til gagnagrunnur þar sem komi fram upplýsingar um:

(1) heildarfjárhæð afskrifaðara skulda hvers fyrirtækis í ISK

(2) hlutfall afskrifaðara skulda af heildarskuldum

(3) hlutfall af hlutafé sem ríkið eða fjármálastofnanir þess yfirtaka í viðkomandi fyrirtæki vegna afskriftanna

(4) eignarhald á viðkomandi fyrirtæki fyrir og eftir afskriftir

(5) ákvörðun afskrifta skuldanna þ.e. af hverjum er hún tekin og hvers vegna

Framkvæmdarleg skilyrði: Nauðsynlegt er að þessar upplýsingar séu

A ) skráðar í grunninn um leið og ákvörðun hefur verið tekin um afskrift skulda og

B) öllum aðgengilegar til þess að  eftirlitið eða aðhaldið með athöfninni nýtist sem best.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt