Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, hefur dregið tillögu sína um þjóðaratkvæðagreiðslu til banka.
Það var ekki þrýstingur frá Evrópusambandinu sem olli þessu, heldur líka algjört upplausnarástand sem greip um sig í grískum stjórnmálum.
Pasok, flokkur Papandreous, gerði uppreisn gegn honum. Fremstur þar var fjármálaraðherrann Evangelos Venizelos – sem margir telja klókasta stjórnmálamann Grikklands um þessar mundir.
Það gerðist líka að hinn nokkuð tækifærissinnaði hægri flokkur, Nea Demokratia, sneri við blaðinu. Flokkurinn – sem var við stjórn þegar gríska krísan hófst – hafði búið sig undir að vera á móti björgunarpakka ESB, en eftir að Papandreou tilkynnti um þjóðaratkvæðagreiðsluna breyttist afstaða Antonis Samaras, leiðtoga flokksins. Papandreou má þá eiga að honum hefur næstum tekist að fá stærsta stjórnarandstöðuflokkinn til að leggjast á árar með björgunaraðgerðunum.
Líklegast er – og kannski er það líka heppilegast – að taki við þjóðstjórn þar sem Pasok og Nea Demokratia starfa saman. Þessir flokkar hafa hingað til verið höfuðandstæðurnar í grískum stjórnmálum, en báðir bera þeir ábyrgð á hinni landlægu spillingu.
Venizelos þykir ekki ólíklegur forsætisráðherra eða þá Samaras, en einnig hefur verið rætt um að fá tæknikrata til að setjast í embættið og þá er helst nefndur Lukas Papademos, fyrrverandi varaforseti Evrópska seðlabankans. Það er erfitt verkefni sem bíður, stórir gjalddagar á skuldum strax í desember og ef björgunarpakkinn fer ekki í gegn er ljóst að gríska ríkið fer í þrot – það líður ekki á löngu áður en það hættir að geta veitt þjónustu sem þykir sjálfsögð eða staðið skil á launagreiðslum.
Um leið yrði máski endanlega lokið tíma Papandreou fjölskyldunnar í grískum stjórnmálum, en faðir og afi Georgs Papapandreou voru báðir forsætisráðherrar.
Afinn sem líka hét Georg dó í stofufangelsi hjá herforingjastjórninni sem tók völdin 1967, faðirinn Andreas átti öðrum fremur þátt í að móta það Grikkland sem nú er í alvarlegri kreppu, hann var hæfileikaríkur stjórnmálamaður, en í aðra röndina skelfilegur lýðskrumari.