Ögmundur Jónasson skrifar um kínverska fjallaskáldið Huang Nobu sem er að kaupa Grímsstaði á Fjöllum.
Ögmundur er innanríkisráðherra og þessi kaup eru líklega háð leyfi ráðuneytis hans.
Ögmundur segir að það sé tími til að hugsa af yfirvegun um þessi landakaup.
En hann segir líka þetta:
„Hvað kaupin á Grimsstöðum áhrærir þá þarf að ræða þau í ljósi heildarhagsmuna og hugsa langt fram í tímann. Af því eru Kínverjar þekktir: Að hugsa langt fram í tímann samhliða því sem þeir eru að kaupa upp heiminn! Þeir virðast hugsa í langtímafjárfestingum og langtímaáhrifum/yfirráðum. Nokkuð þykir mér ýmsir vera fljótir að kyngja ómeltu því sem nú er á borð borið. Það hefur verið gert áður á Íslandi! Allt gleypt hrátt. Það er ekki langt síðan að menn ræddu mikla drauma um stórkostlega landvinninga í fjármálaheiminum . Með dollaramerki í augum var af alvöru rætt um það að gera Ísland að fjármálamiðstöð heimsins enda sköruðum við fram úr gervöllu mannkyni á því sviði. Hástemmt tal en takmörkuð – ef þá nokkur – yfirvegun og dómgreindin engin. En flestir dönsuðu með. Þeir sem andæfðu voru kallaðir úrtölumenn og afturhaldsseggir.
Nú vitum við hvernig fór um sjóferð þá! Skyldu menn ekkert hafa lært? Er ekki tilefni til að staldra við og hugsa þegar verið er að færa Ísland uppá búðarborðið á ný?“