fbpx
Miðvikudagur 10.september 2025
Eyjan

Ritað í nafni Björgólfs

Egill Helgason
Föstudaginn 20. maí 2011 16:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgólfur Thor Björgólfsson heldur úti vef með skrifum sínum – þ.e.a.s. það er haldið úti vef með skrifum sem birtast í nafni Björgólfs, því engum dettur í hug að hann skrifi þetta sjálfur. Samt eru greinar þarna skrifaðar í fyrstu persónu, höfundurinn notar „ég“ eins og Björgólfur væri að skrifa.

Á vef Björgólfs er í dag lagt út af pistli sem ég birti í morgun þar sem ég spurði hver yrði lærdómurinn af Icesave. Ég skrifaði – kannski var það dálítið ofmælt – að maður væri furðu lostinn ef satt reyndist að þrotabú Landsbankans myndi eiga fyrir Icesave, eða réttar sagt, það sem kann að sæta furðu er að Íslendingum skyldi takast að láta þetta mál tröllríða öllu í hátt í þrjú ári. Það mátti alls ekki bíða eftir því að klára málið, og svo voru hinir sem töluðu um að ef þetta yrði samþykkt væru íslensk börn dæmd til fátæktar um ókomna framtíð.

Aftur að vef Björgólfs. Þar birtist í dag grein sem er nokkurs konar svar við þessum litla pistli mínum, ég ætla að gefa mér að höfundurinn sé Ragnhildur Sverrisdóttir. Hún er svohljóðandi:

„Egill Helgason er furðu lostinn og spyr þeirrar spurningar hvaða lærdóm hægt sé að draga af því að eitt mest deilumál íslenskra stjórnmála, Icesave, var ys og þys útaf engu. Eignir þrotabús Landsbankans duga fyrir skuldbindingum vegna þessara innlánareikninga og málið hverfur af sjálfu sér. Í þessu sambandi er rétt að benda á að þeir sem best þekktu til – bankastjórar Landsbankans, sannfærðu mig um í upphafi að eignir bankans myndu duga og hélt ég þeirri skoðun fram m.a. í sjónvarpsviðtali í október 2008 og ítrekaði fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbankans þá skoðun í öðru sjónvarpsviðtali í nóvember sama ár.  Á það hlustuðu hvorki stjórnmálamenn né samverkamenn þeirra á fjölmiðlum landsins. Það virtist þjóna stöðu þeirra í uppgjöri við hrunið að halda lífi í Icesave-grýlunni.

Þegar þessi vefur var opnaður síðasta sumar birti ég á undirvef um Icesave m.a. eftirfarandi:

Icesave innlánareikningar Landsbankans hafa sett mikinn svip á alla umræðu á Íslandi um eftirmál hruns íslenska bankakerfisins. Ein helsta ástæða þess er að endanleg niðurstaða málsins lá ekki strax fyrir líkt og með yfirtöku ríkisins á Glitni, setningu neyðarlaga eða með gjaldþroti Seðlabankans þar sem almenningur, sérfræðingar, stjórnmálamenn og fjölmiðlar stóðu frammi fyrir orðnum hlut. Icesave varð farvegur fyrir stjórnmálamenn og flokka, álitsgjafa og fræðimenn fyrir nær alla umræðu um áhrif fjármálahrunsins á íslenskt samfélag og um nær allt það sem afvega fór á uppgangsárunum. Icesave sem upphaflega dreifði áhættu og jók öryggi varð í kjölfar hrunsins táknmynd alls hins versta í tengslum við útþenslu íslensku bankanna.

Þessi orð standa.

Hvað síðan varðar lærdóminn sem hægt er að draga af Icesave þá er þetta fyrir mér enn eitt dæmið um það þegar stjórnmál og fjölmiðlar búa til hænu úr einni fjöður. Hvor fyrir sig reynir að hrópa sem hæst til að ná athygli fjöldans því þannig telja þeir sig þjóna honum. Það getur verið athyglisvert verkefni fyrir sagnfræðinga að skoða hvaða stjórnmálaöflum Icesave-grýlan hefur þjónað best. Einnig má spyrja sig hvort einhver önnur öfl hafi haft af því hag að halda Icesave í umræðunni þar sem það veitti öðrum uppgjörsmálum hrunsins verulegt skjól.

Ég er sannfærður um að þegar upp verður staðið og öll kurl komin til grafar verður Icesave ekki eina eftirmál hrunsins þar sem menn á borð við álitsgjafann Egil Helgason verða furðu lostnir og spyrja sig hvernig samfélagsumræðan gat farið svona langt frá kjarna málsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Blásið til sóknar fyrir alla – ekki bara Range Rover, Benz og Porsche liðið heldur alla

Svarthöfði skrifar: Blásið til sóknar fyrir alla – ekki bara Range Rover, Benz og Porsche liðið heldur alla
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Popúlismi er tæki og við erum fólk

Nína Richter skrifar: Popúlismi er tæki og við erum fólk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Átök í þingflokki Sjálfstæðismanna – gefa höfuðborgarsvæðið upp á bátinn

Orðið á götunni: Átök í þingflokki Sjálfstæðismanna – gefa höfuðborgarsvæðið upp á bátinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Ekki vera það sem þú ert

Sigmundur Ernir skrifar: Ekki vera það sem þú ert
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: 3-30-300 reglan

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: 3-30-300 reglan
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vinnslustöðin lokar fiskvinnslunni Leo Seafood og segir 50 starfsmönnum upp

Vinnslustöðin lokar fiskvinnslunni Leo Seafood og segir 50 starfsmönnum upp