fbpx
Miðvikudagur 10.september 2025
Eyjan

Fiskveiðistjórnunarfrumvörp á leið í þingið

Egill Helgason
Miðvikudaginn 18. maí 2011 14:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er sagt að frumvarpspakkinn um sjávarútvegsmál eigi að koma í þingið á næstu dögum. Það er ekki vonum seinna, málið átti að vera löngu komið fram en dróst í ráðuneyti Jóns Bjarnasonar.

Hins vegar er þetta býsna flókið dæmi, fáir virðast vera sérlega ánægðir með boðaðar breytingar, bara misjafnlega ánægðir. Þannig að vísast eiga frumvörpin eftir að taka breytingum í meðförum þingsins.

Þing á að klárast eftir fyrstu vikuna í júní, það mun beinlínis vera búið að ráðstafa þinghúsinu vegna hátíðarhalda í tilefni af 100 ára afmæli Háskólans og 200 ára afmæli  Jóns Sigurðssonar.

Sem reyndar virðist vera ákaflega lítil stemming fyrir.

En það er vandséð að verði hægt að klára mikið af þessu fyrir sumarfrí, enda munu margir í stjórnmálunum þrá að þetta verði látið bíða fram á haust. Margir eru mjög vígmóðir eftir átök liðinna ára.

Hins vegar er sagt að Jóhanna Sigurðardóttir geti vel hugsað sér að umræðan um kvótakerfið fari á flug. Innan stjórnarliðisins er nefnilega talið að málið geti valdið Sjálfstæðisflokknum verulegum vandræðum, því það muni blasa við að hann gangi erinda hagsmunaaðila.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Framsókn í útrýmingarhættu – menn verða að gæta orða sinna

Svarthöfði skrifar: Framsókn í útrýmingarhættu – menn verða að gæta orða sinna
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Velkominn herra skattstjóri!

Óttar Guðmundsson skrifar: Velkominn herra skattstjóri!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hætt sem þingflokksformaður

Hildur hætt sem þingflokksformaður